Morgunverðarfundur "Náum áttum" verður þann 15. maí nk. kl. 8:15 - 10:00 á Grand Hótel undir yfirskriftinni "Brotin sjálfsmynd barna og ungmenna" þar sem fjallað er um ábyrgð fjölmiðla og foreldra auk úrræða. Framsöguerindi flytja þær Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur hjá Foreldrahúsi, Vigdís Jóhannesdóttir markaðsráðgjafi hjá pipar/TPWA og Katrín Anna Guðmundsdóttir jafnréttishönnuður. Sjá nánar auglýsingu. Skráning er hjá náum áttum fyrir kl. 15 þriðjudaginn 14. maí nk. Hér má nálgast viðtal við Katrínu Önnu Guðmundsdóttur þar sem fjallað er um lífseigar klisjur í auglýsingum.
>> Lesa meiraÁrlegt málþing Ís-Forsa er haldið í samstarfi við Barnaverndarstofu og Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd. Málþingið verður 14. maí 2013 kl. 14.00-16.00 í Háskóla Íslands, Odda, stofu 101.
Dagskrá málþingsins má sjá hér.
Málþingið er opið öllum
Félagar í Ís-Forsa eru hvattir til að koma með veggspjöld um rannsóknir og þróunarverkefni sín.
Aðgangseyrir er 2.500 kr. greiðist við inngang eða reikningur sendur á stofnanir.
Nemendur í fullu námi greiða ekki aðgangseyri, aðrir nemendur greiða kr. 1.000.
Skráning er á netfangið rbf@hi.is.
>> Lesa meira