Fræðsla, ráðstefnur og viðburðir
Ráðsstefnur á árinu 2024
NBK 2024
Norræna samstarfsnefndin um velferð barna býður öll velkomin á Norrænu barnaverndarráðstefnuna, NBK 2024 í Osló, Noregi dagana 2.-4. september 2024. NBK2024 (eventsair.com)
Þetta er tækifæri að hitta slást í hópinn með fólki frá öllum Norðurlöndunum sem hefur skuldbundið sig til að vernda börn og styðja fjölskyldur.
Norræna barnaverndarþingið (NBK) er samstarfsverkefni norrænu ríkjanna og hefur verið haldið þriðja hvert ár síðan 1921. Norðurlöndin skiptast á að eiga heiðurinn af því að vera gestgjafar og árið 2024 er komið að Noregi að halda þetta sögulega þing. Þetta er tækifæri til að taka þátt og læra af bæði sérfræðingum og vísindamönnum frá öllum Norðurlöndunum.
Meginumfjöllunarefni ráðstefnunnar er Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálinn) í stefnumótun og framkvæmd – hvað getum við lært af hinum Norðurlöndunum? Við erum að leggja lokahönd á spennandi dagskrá með fjölbreyttu úrvali fyrirlesara og málstofum. Dagskránni er ætlað að styðja Norðurlöndin í framkvæmd Barnasáttmálans með því að miðla reynslu og þróa nýja þekkingu.
Við vonum að þú njótir síðsumars í þessari fallegu borg! Það er fullkominn tími til að heimsækja Osló. Við munum bjóða upp á spennandi tveggja daga dagskrá, móttöku og forráðstefnu (pre-conference) með tækifæri til námsheimsókna í nokkur nýstárleg barnaverndarverkefni (child protection projects) og starfsemi í Osló. Einnig gefst tækifæri til að heimsækja nokkrar af nýjum og glæsilegum byggingum í Osló: Óperuhúsið, Munch-safnið, Þjóðminjasafnið og Landsbókasafn Noregs.
Samstarfsaðilar NBK:
Noregur: Norsk Barnevernsamband
Danmörk: Børnesagens Fællesråd
Færeyjar: Barnaverndarstova Føroya
Finnland: Centralförbundet för Barnskydd / Lastensuojelun Keskusliitto
Ísland: Barna- og fjölskyldustofa
Sweden: Stiftelsens Almänna Barnhuset
Noregur: Norsk Barnevernsamband
Danmörk: Børnesagens Fællesråd
Færeyjar: Barnaverndarstova Føroya
Finnland: Centralförbundet för Barnskydd / Lastensuojelun Keskusliitto
Ísland: Barna- og fjölskyldustofa
Sweden: Stiftelsens Almänna BarnhusetNorræna samstarfsnefndin um velferð barna býður öll velkomin á Norrænu barnaverndarráðstefnuna, NBK 2024 í Osló, Noregi dagana 2.-4. september 2024. NBK2024 (eventsair.com)
Þetta er tækifæri að hitta slást í hópinn með fólki frá öllum Norðurlöndunum sem hefur skuldbundið sig til að vernda börn og styðja fjölskyldur.
Norræna barnaverndarþingið (NBK) er samstarfsverkefni norrænu ríkjanna og hefur verið haldið þriðja hvert ár síðan 1921. Norðurlöndin skiptast á að eiga heiðurinn af því að vera gestgjafar og árið 2024 er komið að Noregi að halda þetta sögulega þing. Þetta er tækifæri til að taka þátt og læra af bæði sérfræðingum og vísindamönnum frá öllum Norðurlöndunum.
Meginumfjöllunarefni ráðstefnunnar er Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálinn) í stefnumótun og framkvæmd – hvað getum við lært af hinum Norðurlöndunum? Við erum að leggja lokahönd á spennandi dagskrá með fjölbreyttu úrvali fyrirlesara og málstofum. Dagskránni er ætlað að styðja Norðurlöndin í framkvæmd Barnasáttmálans með því að miðla reynslu og þróa nýja þekkingu.
Við vonum að þú njótir síðsumars í þessari fallegu borg! Það er fullkominn tími til að heimsækja Osló. Við munum bjóða upp á spennandi tveggja daga dagskrá, móttöku og forráðstefnu (pre-conference) með tækifæri til námsheimsókna í nokkur nýstárleg barnaverndarverkefni (child protection projects) og starfsemi í Osló. Einnig gefst tækifæri til að heimsækja nokkrar af nýjum og glæsilegum byggingum í Osló: Óperuhúsið, Munch-safnið, Þjóðminjasafnið og Landsbókasafn Noregs.
Samstarfsaðilar NBK:
---------------------------------------------------------------------------------------------------------
ISPCAN 2024
Hér má nálgast upplýsingar um ISPCAN ráðstefnuna sem haldin verður í Svíþjóð 18-21 ágúst 2024. Yfirskrift ráðstefnunnar er Working together to protect children in times of crisis.
___________________________________________________________________________________
Ráðsstefnur á árinu 2023
Ráðsstefnur á árinu 2023
Farsældarþing var haldið 4. september 2023 í Hörpunni og var vel sótt af fagfólki og áhugafólki um farsæld barna.
Fræðsluáætlun Barna- og fjölskyldustofu vorið 2023
Fræðsluáætlun Barna- og fjölskyldustofu haustið 2022
Ráðsstefnur á árinu 2022
ISPCAN ráðstefna 13. - 16. júní 2022
ISPCAN ráðstefna 28. - 30. mars 2022Ráðstefnur á árinu 2021
NFBO ráðstefna þann 25. maí 2021
ISPCAN ráðstefna 7. - 11. júní 2021
EUSARF ráðstefnan, fyrirhuguð haust 2021 http://eusarf2021.ch/
PRIDE ráðstefnan, fyrirhuguð 25.-27. ágúst 2021 https://www.pride-cz.com/en/conference/
Fyrri ráðstefnur
Norræna Barnaverndarráðstefnan 2018
Evrópu ráðstefna MST https://www.multisysteemtherapie.nl/conference-2020/
Hér er hægt að sjá upptökur frá 10 ára afmælisráðstefnu MST sem haldin var þann 27 nóvember 2018