112-dagurinn er haldinn um allt land í dag

11 feb. 2019

Hugum að öryggismálum heimilisins! Öryggismál heimilisins eru þema 112-dagsins. Áhersla á forvarnir og rétt viðbrögð. Skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur. Verðlaun veitt í Eldvarnagetrauninni.

3-born-2019112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggismálum heimilisins. Aðstandendur dagsins fræða almenning um hvernig má draga úr hættu á slysum og öðrum áföllum á heimilum og hvernig bregðast á við slíkum atvikum. Þetta er gert meðal annars á samfélagsmiðlum og í 112-blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag.

Stór hluti símtala í neyðarnúmerið 112 á rætur að rekja til slysa og annarra áfalla á heimilum fólks. Fólk verður alvarlega veikt heima eða slasast, börn komast í lyf og önnur hættuleg efni, eldur kemur upp á heimilinu, þjófar láta greipar sópa, svo nokkur dæmi séu nefnd. Í 112-blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag er bent á fjölmargt sem unnt er að gera til að fyrirbyggja atvik af þessu tagi og bregðast við þeim, til dæmis með því að læra skyndihjálp, efla fallvarnir og auka eldvarnir og varnir gegn innbrotum.

Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra

Í tilefni dagsins efna Neyðarlínan og samstarfsaðilar 112-dagsins til móttöku í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð kl. 16 í dag með svohljóðandi dagskrá:

· Ávarp: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra

· Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2018 afhent

· Skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur

Samstarfsaðilar 112-dagsins

112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.

112 er samræmt neyðarnúmer Evrópu og er dagurinn haldinn víða um álfuna til að minna á að aðeins þarf að kunna þetta einfalda númer til þess að fá aðstoð í neyð. Markmiðið með 112-deginum er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum og undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfingar.


Í tilefni dagsins var gefið út blað með Fréttablaðinu í dag þar sem fjallað er um málefnið. 

Blaðið má nálgast hér.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica