Reglugerð um úrræði á ábyrgð sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga
Félagsmálaráðuneytið hefur sett nýja reglugerð nr. 652/2004 um úrræði á ábyrgð sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga, að fengnum tillögum Barnaverndarstofu. Þessi reglugerð leysir af hólmi reglugerð um tilsjónarmann, persónulegan ráðgjafa og stuðningsfjölskyldur nr. 452/1993 og einnig að verulegu leyti ákvæði reglugerðar um einkaheimili sem taka börn til dvalar í atvinnuskyni í allt að sex mánuði nr. 562/2000. Þá eru einnig útfærð ýmis atriði sem ekki hefur áður verið kveðið á um í reglum með skýrum hætti. Í nýjum barnaverndarlögum nr. 80/2002 var leitast við að gera ákvæði um úrræði í barnavernd skýrari en áður hafði verið. Í nýju reglugerðinni er fjallað um almenn stuðningsúrræði, sumardvöl á vegum barnaverndarnefnda, tilsjónarmann og persónulegan ráðgjafa, stuðningsfjölskyldur og heimili og önnur úrræði á vegum barnaverndarnefnda. Í reglugerðinni kemur m.a. fram hvaða kröfur skal gera til þeirra sem taka að sér að veita þjónustu á grundvelli barnaverndarlaga, svo sem um skyldu til að sækja um leyfi barnaverndarnefndar eða Barnaverndarstofu eftir því sem við á, skilyrði fyrir því að veita leyfi og endurnýjun leyfa.Reglugerðina má finna á heimasíðunni undir lög og reglugerðir