Norrænar barnaverndarráðstefnur sumarið 2006
Næsta sumar verða haldnar tvær norrænar barnaverndarráðstefnur. Sú fyrri er haldin á vegum samtakanna "Nordisk forening mot barnemishandling og omsorgssvikt" verður í Malmö dagana 7.-9. maí 2006. Ráðstefnunar um "illa meðferð á börnum" eru haldnar á tveggja ára fresti og var síðast haldin í Finnlandi 2004. Helstu fyrirlesarar verða: Kathleen Coulborn Faller, prófessor í félagsráðgjöf við háskólann í Michigan, Kari Ormstad, prófessor í réttarlæknisfræðum við háskólann í Óslo og dr. Barbara Bonner, sálfræðingur frá háskólanum í Oklahoma. Fjölmargir aðrir fyrirlestrar og málstofur verða á ráðstefnunni. Þeim sem vilja kynna sér efni hennar betur er bent á netslóðina: www.nfbo.comSíðari ráðstefnan verður haldin í Kaupmannahöfn dagana 24. - 27. ágúst. Norræna barnaverndarráðstefnan er haldin á þriggja ára fresti og var síðast hér á Íslandi í ágúst 2003. Á ráðstefnunni verður leitast við til að skoða samhengi milli menntunar, rannsókna og praksis í barnaverndarvinnu á tímum sem litaðir eru af miklum breytingum. Upplýsingar um ráðstefnuna má finna á: www.nbk2006.dk