Rannsókn á árangri styrkts fósturs
Barnaverndarstofa vinnur um þessar mundir að rannsókn á árangri styrkts fósturs sem er úrræði sem mælt er fyrir um í 4 .gr. 65. barnaverndarlaga. Þar segir að ef til stendur að ráðstafa barni í fóstur sem á við að stríða verulega hegðunarerfiðleika vegna geðrænna, tilfinningalegra og annarra vandamála af því tagi sé heimilt að mæla fyrir um sérstaka umönnum og þjálfun á fósturheimili í stað þess að vista barn á stofnun.Slík ráðstöfun varir að jafnaði í u.þ.b. eitt ár. Við upphaf rannsóknar hafa 15 börn lokið dvöl í styrktu fóstri eða eru að ljúka dvölinni.
Með rannsókninni er leitast við að meta árangur af styrktu fóstri, m.t.t. líðan og hegðunar barna fyrir og eftir fóstur. Leitað verður álits fósturforeldra, barnsins sjálfs, foreldra þess og starfsmanna bvn.