Málstofur um barnavernd
Málstofur um barnavernd verða haldnar síðasta mánudag í mánuði (nema í apríl) fram á vor. Þeir sem standa að málstofunum eru félagsmálaráðuneytið, barnavernd Reykjavíkur, félagsráðgjöf í HÍ og Barnaverndarstofa. Málstofurnar eru f.o.f. ætlaðar barnaverndarstarfsmönnum og helstu samstarfsmönnum þeirra og er ætlað að kynna rannsóknir og verkefni á sviði barnaverndar og stuðla að umræðu um málaflokkinn.Málstofurnar eru haldnar á Barnaverndarstofu frá kl. 12.15 - 13.15 á eftirtöldum dögum:
27. febrúar
27. mars
08. maí (ath. engin málstofa í apríl)
29. maí