Fjöldi tilkynninga til barnaverndarnefnda í janúar

21 mar. 2006

Í janúar bárust barnaverndarnefndum landsins 585 tilkynningar varðandi 577 börn. Á sama tíma í fyrra bárust 519 tilkynningar og því hefur tilkynningum í janúar fjölgað um tæp 13% milli ára.

69% tilkynninganna (405) komu frá höfuðborgarsvæði en 31% frá landsbyggðinni (180). Af þessum 585 tilkynningum bárust 39 tilkynningar í gegnum neyðarlínuna 1-1-2.

Ástæður tilkynninga skiptust þannig að 28,5% voru vegna vanrækslu, 16,1% vegna ofbeldis, 55,4% vegna áhættuhegðunar barna og 0% vegna þess að heilsu eða líf ófædds barns var í hættu.

Flestar tilkynningar komu frá lögreglu og voru 61% allra tilkynninga. Um 7,5% tilkynninga bárust frá foreldrum en aðeins í 0,3% tilvika leitaði barnið sjálft til barnaverndarnefndar.

Hér má sjá nánari sundurliðun á tilkynningum í janúar

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica