Kynning á aðgerðaráætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegu ofbeldi gegn börnum
Í hádeginu fór fram málstofa á Barnaverndarstofu undir heitinu "Kynning á aðgerðaráætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegu ofbeldi gegn börnum". Fyrirlesari var Dögg Káradóttir deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu.Í október sl. samþykkti ríkisstjórnin tillögu dómsmálaráðherra og þáverandi félagsmálaráðherra um gerð aðgerðaráætlunar gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi á Íslandi. Áætlunin var lögð fyrir ríkisstjórnina 7. mars til kynningar. Á málstofunni var áætlunin kynnt og rædd.
Athygli er vakin á því að upptaka af málstofunni er nú kominn á vef Barnaverndarstofu (undir málstofur í barnavernd).