Átak Evrópuráðsins í málefnum barna
Dagana 2.-4. apríl sl. hleypti Evrópuráðið af stokkunum átaksverkefninu “Building A Europe For and With Children” með ráðstefnu sem haldin var í Monakó. Tilgangur verkefnisins er að vekja samfélagsumræðu um almenn mannréttindi barna með sérstakri áherslu á vernd barna gegn hvers konar ofbeldi. Verkefnið er skilgreint sem þverfaglegt átak sem miði að því að hafa áhrif á stjórnvöld og samfélagsstofnanir með upplýsingamiðlun og fræðslu, einkum á sviði forvarna, og er ætlað að auðvelda aðildarríkjunum að efna alþjóðlegar skuldbindingar sínar í málefnum barna svo sem Barnasamning Sameinuðu þjóðanna, Mannréttindasáttmála Evrópu og Félagsmálasáttmála Evrópu. Gert er ráð fyrir að verkefnið vari í þrjú ár og að á þeim tíma verði unnin aðgerðaráætlun sem taki til almennrar löggjafar svo og félags, mennta- og heilbrigðismála með vernd barna gegn ofbeldi að leiðarljósi.Ákvörðun um þetta átaksverkefni var tekin á fundi forsætisráðherra Evrópuráðsins sem haldinn var í Varsjá í maí á sl. ári. Opnunarráðstefnuna sóttu m.a. fulltrúar allra 46 aðildarríkja Evrópuráðsins og auk fjölmargra alþjóðsamtaka í málefnum barna. Þátttaka ungs fólks setti sérstakan svip á ráðstefnuna og jafnframt röggsöm fundarstjórn Karolínu prinsessu af Monakó. Fulltrúi Íslands á ráðstefnunni var forstjóri Barnaverndarstofu.
Nánari upplýsingar um átaksverkefnið “Building A Europe For and With Children” má finna á heimasíðu Evrópuráðsins, sjá hér