Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi!
Eins og kunnugt tók fyrsta Barnahúsið að íslenskri fyrirmynd til starfa í Linköping í Svíþjóð í september á síðasta ári, en forstjóra Barnaverndarstofu var boðið að flytja ávarp við opnun þess eins og áður var greint frá. Nú hafa tvö önnur barnahús hafið rekstur: í Malmö og í Stokkhólmi. Áformað er að þrjú bætist við síðar á þessu ári: í Gautaborg, Sundsvall og í Umeå. Þá hefur sænska dómsmálaráðuneytið falið réttarfélagsfræðideild háskólans í Lundi að annast árangursmat á starfseminni í þessum sex borgum og er áætlað að því verki verði lokið á árinu 2007 (frekari upplýsingar má fá hér). Starfsemi þessara barnahúsa verður með nokkuð mismunandi sniði og er ætlunin m.a. að gera samanburð á ólíkum útfærslum og verklagi.Þá lítur út fyrir að fyrsta barnahúsið í Noregi taki til starfa fyrir lok ársins. Nefnd nokkurra ráðuneyta vinnur nú að að undirbúningi starfseminnar í kjölfar þess að norska stórþingið ákvað að verja 2 milljónum norskra króna til þess að húsið geti hafið starfsemi á þessu ári (sjá hér). Eins og í Svíþjóð hafa Norsku og dönsku samtökin Barnaheill barist ötullega fyrir starfrækslu barnahúsa í þessum löndum og lagt fram ítarlegar skýrslur í því skyni að hafa áhrif á ákvarðanir stjórnvalda í þeim efnum (sjá vefsíður sænsku samtakanna hér, þeirra dönsku hér, og norsku samtakanna hér.