Síbrotaunglingar –hvar eiga vondir að vera?
Málþing FÍUM, félags íslenskra uppeldis- og meðferðarstofnanna, verður haldið í Hlégarði föstudaginn 28. apríl næstkomandi. Skráning þátttöku fer fram með tölvupósti hjá formanni, Þórunni Óskarsdóttur, Netfang: thorunn@ci.is.Hér má sjá dagskrá málþingsins en meðal annars mun Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu fjalla um umönnun og meðferð barna utan heimilis og Allan Mortens forstöðumaður meðferðarheimilisins Háholts um hvort meðferð ungra afbrotamanna sé misskilin góðvild.