Yfirlit yfir stöðu mála í mars

17 maí 2006

Í mars bárust Barnaverndarstofu 14 umsóknir um meðferð en þær voru 18 í febrúar. Umsóknum hefur því fækkað um 22% milli mánaða. Umsóknir um Stuðla voru flestar eða 10 talsins. Flestar umsóknir bárust frá barnaverndarnefndum í nágrenni Reykjavíkur eða tæp 43% umsókna.

Barnaverndarstofu bárust auk þess 16 umsóknir um fóstur í mars. Flestar umsóknir bárust frá Barnavernd Reykjavíkur eða helmingur allra umsókna. Flestar umsóknir voru um tímabundið fóstur (75% allra umsókna). Ein umsókn um að gerast fósturforeldrar barst Barnaverndarstofu í mars.

Í Barnahúsi fóru fram 20 rannsóknarviðtöl í mars en þau voru 16 í febrúar. Þeim hefur því fjölgað um 25% milli mánaða. Greiningar- og meðferðarviðtöl voru 8. Tvær læknisskoðanir fóru fram í Barnahúsi í mars.

Í mars bárust barnaverndarnefndum landsins 566 tilkynningar varðandi 541 barn. Fjöldi tilkynninga í febrúar var 524. Tilkynningum hefur því fjölgað um 8% milli mánaða. Ef fjöldi tilkynninga er borinn saman við sama mánuð í fyrra kemur í ljós að þeim hefur fjölgað um rúm 39% milli ára (barnaverndarnefndum bárust 406 tilkynningar í mars 2005).

72% tilkynninganna (407) komu frá höfuðborgarsvæði en 28% frá landsbyggðinni (159). Af þessum 566 tilkynningum bárust 14 tilkynningar í gegnum neyðarlínuna 1-1-2.

Ástæður tilkynninga skiptust þannig að 27,4% voru vegna vanrækslu, 18,0% vegna ofbeldis, 53,7% vegna áhættuhegðunar barna og 0,9% vegna þess að heilsu eða líf ófædds barns var í hættu.

Flestar tilkynningar komu frá lögreglu og voru 51,9% allra tilkynninga. Um 15% tilkynninga bárust frá skóla/sérfræðiþjónustu/fræðslu- eða skólaskrifstofu en aðeins í 0,2% tilvika leitaði barnið sjálft til barnaverndarnefndar.

Hér má sjá skýrslu yfir stöðu mála í mars

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica