Foster Pride námskeið hefst í september
Þann 2. september næstkomandi verður haldið Foster Pride námskeið fyrir verðandi og starfandi fósturforeldra. Námskeiðið stendur til 3. nóvember. Skilyrði til þátttöku er að viðkomandi hafi samþykki barnaverndarnefndar í heimilisumdæmi sínu sem fósturforeldri. Fullt er á námskeiðið.Samkvæmt 9. gr. reglugerðar um fóstur nr. 804/2004 ber umsækjanda að sækja námskeið á vegum Barnaverndarstofu áður en leyfi er veitt. Markmið með námskeiði er annars vegar að leggja mat á hæfni umsækjanda og hins vegar að veita umsækjanda nauðsynlega þjálfun og undirbúa hann undir hlutverk sitt. Lagðar eru áherslur á 5 megin hæfniskröfur sem eru að geta annast og alið upp barn, þekkja þroskaferli barns og mætt frávikum í því ferli, stuðla að tengslum barns við fjölskyldu þess, geta unnið í teymi og stuðlað að því að barnið myndi traust og þroskandi tengsl við fjölskyldu sem ætlað er að vara til frambúðar.
Næsta námskeið verður haldið í febrúar 2007. Þeir sem hafa áhuga að skrá sig á það námskeið vinsamlegast hafið samband við Hildi Sveinsdóttir á hildur@bvs.is.