Samstarf við Neyðarlínuna 112 og 112 dagurinn

5 jan. 2007

Barnaverndarstofa er í samstarfi við Neyðarlínuna 112 um móttöku barnaverndartilkynninga. Fjölgun hefur orðið á barnaverndartilkynningum sem berast í gegnum Neyðarlínuna. Fyrstu níu mánuði ársins 2005 bárust 155 tilkynningar í gegnum Neyðarlínuna en þær voru orðnar tvisvar sinnum fleiri fyrstu 9 mánuði ársins 2006 eða alls 313.

Barnaverndarstofa vill vekja athygli á 112 deginum. 112 dagurinn verður haldinn á vegum viðbragðsaðila í björgun og almannavörnum um allt land sunnudaginn 11. febrúar næstkomandi. Að þessu sinni verður dagurinn helgaður margvíslegum störfum sjálfboðaliða að forvörnum, leit og björgun, almannavörnum og neyðaraðstoð. Megináhersla verður lögð á að kynna starf sjálfboðaliðasamtakanna og mikilvægi þess.

Markmiðið með 112 deginum er að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum.

Föstudaginn 9. febrúar verður ljósmyndasýningin Útkall 2006 opnuð en fyrri sýningar með myndum af viðbragðsaðilum að störfum hafa vakið mikla athygli. Um hádegisbil sunnudaginn 11. febrúar, á 112 daginn, fylkja viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu og víðar liði í bíla- og tækjalest í tilefni dagsins. Að því búnu verða tækin til sýnis og sjálfboðaliðasamtökin, Rauði kross Íslands og Slysavarnafélagið Landsbjörg, standa sameiginlega að dagskrá til að kynna starfsemi sína og verkefni sjálfboðaliða í öryggis- og almannavarnakerfi landsins.

Við það tækifæri mun Rauði kross Íslands tilkynna um val á skyndihjálparmanni ársins og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna afhendir verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2006.

Samstarfsaðilar 112 dagsins eru: 112, Barnaverndarstofa, Brunamálastofnun, Flugstoðir, Landhelgisgæslan, Landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

Garðar H. Guðjónsson kynningarráðgjafi stýrir verkefninu og er unnt að leita nánari upplýsinga um 112 daginn 2007 með því að senda tölvupóst á gaji@mmedia.is.

Hér má sjá dagskrá 112 dagsins

Nýjustu fréttir

Hjólabrettastelpa

09. mar. 2023 : Málstofa 3 – áhættuhegðun og líðan barna og unglinga á Covidtímum

Málstofa Barna-og fjölskyldustofu “Barnavernd á Covidtímum”.

Lesa meira
Kona á skrifstofu

20. feb. 2023 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndar á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022.

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa tók við. Mánaðarlega skiluðu barnaverndarnefndir tölulegum upplýsingar varðandi tilkynningar, til Barnaverndarstofu og er nú sömu upplýsingum skilað til Barna- og fjölskyldustofu. Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022. 

Lesa meira

13. feb. 2023 : Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar og miðlalæsi. Morgunverðarfundur - Náum Áttum, miðvikudaginn 15.02.2023

Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar og miðlalæsi - hver er staðan og hvernig ætti að kenna?

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica