Rit Evrópuráðsins: Réttindi barna á stofnunum
Nýlega kom út ritið „Rights of Children at Risk and in Care“, sem gefin er út af Evrópuráðinu. Bókin hefur að geyma tilmæli Evrópuráðsins um réttindi barna á stofnunum ásamt skýrslu Braga Guðbrandssonar um börn og stofnanir í Evrópu. Þá ritar Bragi formála bókarinnar og rekur þróun mála síðustu árin, m.a. er varðar rannsóknir á áhrifum stofnana á þroska barna og þróun viðhorfa til réttinda barna á stofnunum.Óhætt er að segja að rit þetta varpi ljósi á ýmiss þeirra atriða sem hafa verið til opinberrar umfjöllunar í íslensku samfélagi nýlega, einkum í tengslum við vistun og meðferð barna á drengjaheimilinu í Breiðavík og öðrum opinberum uppeldisheimilum á seinni hluta síðustu aldar. Tilmæli Evrópuráðsins um réttindi barna á stofnunum og skýrsla Braga um forvarnir og valkosti við stofnanadvöl barna lýsa þeim alþjóðlegu viðhorfum sem nú eru uppi í þessum efnum ekki síst í ljósi Barnasamnings S.þ.