Blátt áfram - Björt framtíð
Dagana 24. og 25. maí næstkomandi verður ráðstefna um kynferðislegt ofbeldi. Samkvæmt Blátt áfram er markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir sem samfélagið getur farið í að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Þegar um er að ræða forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum, þá festumst við oft í mannlegum viðbrögðum. Þessi viðbrögð geta verið ótti, reiði og afneitun. Við sem leggjum fram tillögur um að þessi mál séu rædd, blátt áfram og í dagsljósinu berum einnig ábyrgð á því að vera gott fordæmi fyrir umhverfið. Við gerum það með því að vekja athygli á þeim fjölda leiða sem við getum farið til þess að fræðast um og fyrirbyggt kynferðislegt ofbeldi á börnum.Athugið að ráðstefnan fer fram á ensku. Hægt er að skrá sig hér.
Samstarfsaðilar eru: Barnaverndarstofa, Blátt áfram, Félag heyrnarlausra, Háskólinn í Reykjavík, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Þroskahjálp, Stígamót og Neyðarlínan 112.