Reynslusögur barna úr barnavernd - Barnavernd frá sjónarhóli barna
Barnaverndarstofa og Rannsóknasetur í barna og fjölskylduvernd bjóða til opins fyrirlesturs með Reidun Follesø. Fyrirlestur verður haldinn mánudaginn 11. júní kl. 11.00 - 12.00 á Barnaverndarstofu.Reidun Follesö er kennari við háskólann í Bodø þar sem hún kennir barnavernd og félagsráðgjöf. Hún hefur í áraraðir verið upptekin af "þátttöku notenda" í barnavernd og doktorsritgerð hennar fjallaði um það efni - Bruker eller brukt? Ritgerðin fjallar m.a. um hvaða hlutverki Landssamband barnaverndarbarna hefur gegnt í norsku barnaverndarstarfi.
Reidun Follesø ritsýrði bókinni "Sammen om barnevernd - enestående fortellinger - eller utfordringer" þar sem hópur "barnaverndarbarna" sem hafa verið í fóstri eða á meðferðarheimili segja frá reynslu sinni. Aðrir sem koma að gerð bókarinnar eru Vigdis Bunkholdt, sálfræðingur og sérfræðingur í fósturmálum, Erik Larsen, sálfræðingur og prófessor við háskólann í Sör Trönderlag og Jan Storö lektor við háskólann í Oslo ásamt Landssambandi barnaverndarbarna.
Allir velkomnir