Ofbeldi á börnum
Alþjóðasamtökin gegn ofbeldi og vanrækslu í garð barna (ISPCAN eða The International Society for the Prevention of Abuse and Neglect ) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF eða United Nations Children´s Fund) fóru þess á leit við Barnaverndarstofu að Ísland, líkt og flest lönd heims, tæki þátt í alþjóðlegri rannsókn á ofbeldi í garð barna.Tilgangur rannsóknarinnar var annars vegar að afla upplýsinga um reynslu barna af ofbeldi og hins vegar að þróa mælitæki sem gefur áreiðanlegar og sambærilegar niðurstöður um reynslu barna af ofbeldi. Mikilvægt þótti að framkvæma slíka rannsókn þar sem sjónarhorni barnanna sjálfra hefur oftast verið gefinn lítill gaumur í rannsóknum á ofbeldi.
Tvenns konar spurningalistar voru lagðir fyrir bekkjardeildir 7. og 9. bekk grunnskóla, bæði á höfuðborgarsvæðinu, landsbyggðinni og í dreifbýli. Annars vegar var lagður fyrir spurningalisti varðandi ofbeldi á heimili barnanna eða í grennd við heimilið og hins vegar spurningalisti varðandi ofbeldi við skóla eða vinnustað.
Helstu vísbendingar könnunarinnar eru þær að um fimmta hvert barn á grunnskólaaldri hefur sætt líkamlegu ofbeldi á heimili og er hlutfallið svipað á vettvangi skólans. Allt að þriðjungur telur sig hafa sætt andlegu ofbeldi í einhverri mynd og tæplega einn af hverjum tíu greinir frá kynferðislegu ofbeldi í einhverri mynd.
Hér má sjá niðurstöður rannsóknarinnar en vert er að taka það fram að um forprófun listanna var að ræða og því er úrtak lítið. Varhugavert er því að alhæfa útfrá niðurstöðunum en þær gefa vissulega vísbendingar um reynslu barna af ofbeldi.