Yfirlit yfir barnaverndarmál á öðrum ársfjórðungi 2007

1 nóv. 2007

Barnaverndarstofu bárust 34 umsóknir um meðferð á öðrum ársfjórðungi 2007. Á sama tíma í fyrra höfðu borist 43 umsóknir. Barnaverndarstofu bárust auk þess 28 umsóknir um fósturheimili fyrir börn og voru flestar um tímabundið fóstur eða 78% allra umsókna. Auk þess bárust Barnaverndarstofu 18 umsóknir þeirra sem óskuðu eftir því að gerast fósturforeldrar. Flestar umsóknir komu frá Reykjavík og nágrenni. Ekkert barn fór í fóstur á vegum Martinswerk.

Í Barnahúsi fóru fram 35 rannsóknarviðtöl á öðrum ársfjórðungi, þar af 16 skýrslutökur eða 46% allra rannsóknarviðtala. Greiningar- og meðferðarviðtöl voru 15. Fjórar læknisskoðanir fóru fram í Barnahúsi á þessum tíma.

Á öðrum ársfjórðungi 2007 bárust alls 2.159 tilkynningar um 1.769 börn. Ef fjöldi tilkynninga er borinn saman við annan ársfjórðung 2006 kemur í ljós að þeim hefur fjölgað um rúm 45% milli ára og fjöldi barna um rúm 26%. Alls voru 41% tilkynningar kannaðar frekar á tímabilinu, þ.e. mál 717 barna.

Hér má sjá skýrslu um stöðu mála á fyrsta ársfjórðungi.
Hér má sjá frekari skiptingu á stöðu mála skipt eftir barnaverndarnefndum.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica