Ráðstefna um eflingu foreldrafærni mánudaginn 17. mars

4 mar. 2008

Undanfarin ár hefur áhersla á eflingu foreldrahæfni með fjölbreyttri uppeldisfræðslu og þjálfun foreldra eflst á Vesturlöndum. Vitneskju um áhrif uppeldisaðferða á geðheilsu og þroska barna með mismunandi þarfir og á ólíkum aldri hefur fleygt fram. Rannsóknir hafa lagt grunn að þróun markvissra aðferða til að þróa og virkja hæfni foreldra á þessu sviði. Á meðal þeirra eru aðferðir á borð við MST (Multisystematic Treatment), PMT (Parent Management Training) og Triple P (Positive Parenting Programme).

Í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar til að styrkja stöðu barna og ungmenna er kveðið á um fyrirhugaðar aðgerðir, meðal annars á grundvelli tilmæla Evrópuráðsins (2006) nr. 19 um aðgerðir til efla foreldrahæfni. Áætlunin tiltekur sérstaklega foreldra fyrsta barns, foreldra barna með sérþarfir og foreldra unglinga. Af þessu tilefni efnir félags- og tryggingamálaráðuneytið og samráðsnefnd ráðuneytanna um framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar til ráðstefnu hinn 17. mars nk á Grand hótel Reykjavík frá kl. 9-17. Tilgangurinn er sá að kynna ólíkar aðferðir til eflingar foreldrafærni, hérlendis sem erlendis.

Aðalfyrirlesarar verða:
- Alan Ralph, prófessor við University of Queensland, Brisbane, Ástralíu, en hann mun fjalla um Triple P-aðferðina til eflingar foreldrafærni, en hún hefur öðlast útbreiðslu langt út fyrir Ástralíu, meðal annars í Evrópu og Kanada.

- Björn Arnesen félagsráðgjafi, frá Kompetansesenter for Atferd, Þrándheimi, Noregi, en hann mun meðal annars greina frá reynslu Norðmanna af ólíkum aðferðum til eflingar foreldrahæfni, meðal annars Webster-Stratton-uppeldisaðferðinni, the Incredible Years, ásamt MST og PMT.

Þá verða fluttir fyrirlestrar um starf á þessu sviði hérlendis, meðal annars innleiðingu MST á Íslandi, PMT í Hafnarfirði, SOS-uppeldisfræðsluna í Reykjanesbæ ásamt öðrum aðferðum til eflingar foreldrahæfni á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna og ÓB Ráðgjafar ehf.

Dagskrá


9.00–9.15 Setning og ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra

9.15–10.15 Alan Ralph, prófessor við Háskólann í Queensland, Ástralíu: „Intergrating universal and targeted parenting interventions using the Triple P – Positive Parenting Programme“

10.15–10.40 Kaffi

10.40–11.10 Alan Ralph: Framhald

11.10–12.00 Björn Arnesen, Cand Socion, MKA í Þrándheimi: „The Incredible Years Teachers and Parent Training Program – Challenges and benefits of using evidence based programs“

12.00–13.00 Hádegishlé

13.00–13.30 Björn Arnesen: „Norwegian reflections from using family based intervention programs“

13.30–13.50 Halldór Hauksson yfirsálfræðingur, Barnaverndarstofu: Innleiðing MST á Íslandi

13.50–14.10 Margrét Sigmarsdóttir forstöðusálfræðingur, Hafnarfirði: Foreldrafærniþjálfunin PMT

14.10–14.30 Gylfi Jón Gylfason forstöðusálfræðingur, Reykjanesbæ: Uppeldisfræðslan SOS

14.30–14.50 Geir Gunnlaugsson, barnalæknir og forstöðumaður Miðstöðvar heilsuverndar barna: „Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar“

14.50–15.10 Ólafur Grétar Gunnarsson, ÓB Ráðgjöf ehf.: „Barnið boðið velkomið“

15.10–15.30 Kaffi

15.30–17.00 Panell og almennar umræður

Ráðstefnustjóri: Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu og formaður samráðsnefndar ráðuneytanna um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum barna

Ráðstefnan er öllum opin

Unnt er að skrá sig með tölvupósti (kristinn.ragnar.hallbergsson@fel.stjr.is) eða í síma 545 8100 fyrir kl. 12.00 föstudaginn 14. mars

Hér má sjá dagskrána í pentvænu formi



Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica