Ráðstefna Norræna félagsins gegn illri meðferð á börnum
Dagana 18.-21. maí verður ráðstefna Norræna félagsins gegn illri meðferð á börnum á Hilton Reykjavík Nordica (sjá www.congress.is/nfbo2008). Ráðstefnan er skipulögð í samstarfi við Barnaverndarstofu.Norræna félagið gegn illri meðferð á börnum (www.nfbo.com) var stofnað í Kaupmannahöfn 1998. Félagið hefur Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins að leiðarljósi. Markmið þess er að standa fyrir og styðja norrænt samstarf einstakra fagmanna og skoðanaskipti þeirra margvíslegu faghópa sem vinna með börn. Félagið er aðili að ISPCAN (International Society for the Prevention of Child Abuse and Neglect, www.ispcan.org). Þema ráðstefnunnar er Börn og vanræksla: Þarfir - Skyldur - Ábyrgð. Ætlunin er að höfða til sérfræðinga á sem flestum sviðum þar sem unnið er með þarfir, hagsmuni og réttindi barna og beina athyglinni að vanrækslu í víðum skilningi, af hálfu foreldra, sérfræðinga og samfélagsins.