Verklagsreglur um tilkynningaskyldu til barnaverndarnefnda

2 apr. 2009

Barnaverndarlögin leggja ríka skyldu bæði á almenning og sérstaklega þá sem hafa með börn að gera í starfi sínu að tilkynna til barnaverndarnefnda þegar grunur vaknar um að barn búi við vanrækslu eða ofbeldi eða stefni heilsu sinni og þroska í hættu. Starfsfólk í heilbrigðisþjónustu og skóla er í lykilaðstöðu til að meta hvort ástand, líðan eða umönnun barns sé þannig háttað að tilkynna eigi um það til barnaverndarnefndar. Því hafa verið gerðar verklagsreglur til að reyna að auðvelda mat á því hvenær beri að tilkynna og veita barnaverndarnefnd upplýsingar og hvernig tilkynningum er háttað. Það hefur borið á því að aðilar hafa ekki verið meðvitaðir um verklagsreglurnar og því þykir rétt að árétta þær hér.

Árið 2003 voru gefnar út verklagsreglur um tilkynningaskyldu heilbrigðisstarfsfólks til barnaverndarnefnda. Verklagsreglurnar voru unnar af nefnd en í henni áttu sæti fyrir hönd Landsspítala Háskólasjúkrahúss Jón R. Kristinsson, læknir, Theodór Friðriksson, læknir og Kristín Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Fulltrúar barnaverndaryfirvalda voru Halldóra Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi hjá Barnavernd Reykjavíkur; Hrefna Friðriksdóttir, lögfræðingur á Barnaverndarstofu og Anni G. Haugen, deildarstjóri á Barnaverndarstofu.

Verklagsreglurnar voru kynntar á Landspítalanum auk þess sem landlæknir sendi þær öllum heilsugæslustöðvum landsins og er með þær á heimasíðu embættisins þannig að heilbrigðisstarfsfólk geti nýtt sér þær þegar þörf er á.

Þá var vorið 2006 skipaður starfshópur þar sem í sátu fulltrúar frá menntamálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Barnavernd Reykjavíkur og Barnaverndarstofu. Markmið starfshópsins var að semja verklagsreglur um tilkynningarskyldu starfsfólks leik-, grunn- og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda. Starfshópurinn leitaði umsagna m.a. hjá félögum leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólakennara, skólastjórafélaginu, félagi náms- og starfsráðgjafa, félagi íslenskra skólafélagsráðgjafa, félagi skólahjúkrunarfræðinga og Heimili og skóla. Verklagsreglurnar voru sendar öllum hlutaðeigandi í lok árs 2006.

Verklagsreglunum er ætlað að minna á tilkynningaskylduna og um leið að auðvelda og skýra þær boðleiðir sem nota þarf. Það er von Barnaverndarstofu að þær geti þannig stuðlað að meiri og markvissari samvinnu aðila í málefnum barna sem þurfa vernd, stuðning og umönnun frá þessum starfshópum. Verklagsreglurnar eru aðgengilegar á heimasíðunni undir Barnaverndarstofa - verklagsreglur.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica