Stuðningur fyrir börn og foreldra
Foreldrahús býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir börn og foreldra. Þar ber fyrst að nefna fjölskylduráðgjöf sem opin er alla daga ársins og allan sólarhringinn þar sem foreldrar geta hringt í Foreldrasímann 5811799. Þá veitir fagfólk samtakanna viðtöl og ráðgjöf fyrir foreldra og börn þeirra.Á hverju ári eru starfandi foreldrahópar þar sem fagfólk leiðir foreldrahópa sem ætlaðir eru foreldrum með börn og unglinga í vanda.
Í boði eru námskeið fyrir börn og unglinga: V.E.R.A. námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-18 ára sem eiga við hegðunarerfiðleika að stríða sem og tilfinningalega vanlíðan; námskeið fyrir 10-12 ára til að styrkja börn fyrir unglingsárin; og sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 13-17 ára unglinga þar sem áhersla er á að efla sjálfstraust og félagslega færni.
Í Foreldrahúsi er rekin eftirmeðferð fyrir ungmenni sem lokið hafa meðferð vegna vímuefnaneyslu. Foreldrar eru hvattir til að nýta sér hópastarfið samhliða.
Hér er að fynna yfirlit yfir starfið í vetur. Nánari upplýsingar er að finna á www.vimulaus.is