Foster-Pride námskeið hefst í febrúar

5 jan. 2010

Þann 6. febrúar næstkomandi hefst Foster-Pride námskeið fyrir verðandi og starfandi fósturforeldra. Námskeiðið stendur til 26. mars. Skilyrði til þátttöku er að viðkomandi hafi samþykki barnaverndarnefndar í heimilisumdæmi sínu sem fósturforeldri. Fullt er á námskeiðið en tekið verður við skráningu á biðlista.

Samkvæmt 9. gr. reglugerðar um fóstur nr. 804/2004 ber umsækjanda að sækja námskeið á vegum Barnaverndarstofu áður en leyfi er veitt. Markmið með námskeiði er annars vegar að leggja mat á hæfni umsækjanda og hins vegar að veita umsækjanda nauðsynlega þjálfun og undirbúa hann undir hlutverk sitt. Lagðar eru áherslur á 5 megin hæfniskröfur sem eru að geta annast og alið upp barn, þekkja þroskaferli barns og mætt frávikum í því ferli, stuðla að tengslum barns við fjölskyldu þess, geta unnið í teymi og stuðlað að því að barnið myndi traust og þroskandi tengsl við fjölskyldu sem ætlað er að vara til frambúðar.

Næsta námskeið er fyrirhugað í september og eru áhugasamir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hildi Sveinsdóttur á hildur@bvs.is.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica