Nýtt MST teymi
Vegna aukinnar eftirspurnar barnaverndarnefnda eftir MST meðferð eða fjölkerfameðferð (e: Multisystemic Therapy) ákvað Barnaverndarstofa að bæta við öðru meðferðarteymi og tók það til starfa 29. mars sl. eftir hefðbundna viku grunnþjálfun. Frá nóvember 2008 hefur starfað eitt MST teymi með fjórum MST-þerapistum og teymisstjóra. Nú eru teymin sem sagt tvö með þremur þerpistum (sálfræðingar og félagsráðgjafi) auk teymisstjóra (sálfræðingar) í hvoru teymi eða alls átta starfsmönnum. MST meðferðin fer að mestu fram á heimili fjölskyldunnar og snýr að öllu nærumhverfi hennar, stórfjölskyldu og eftir atvikum fjölskylduvinum, félagahópi barns, skóla og tómstundum.MST er í boði á suðvesturhorni landsins fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12–18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunarvanda svo að óbreyttu kæmi til vistunar barns utan heimilis vegna þess að önnur stuðningsúrræði samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga hafa ekki skilað árangri eða eru talin ófullnægjandi. Um er að ræða hegðunarvanda sem kemur m.a. fram í afskiptum lögreglu, afbrotum eða refsiverðri hegðun, skrópum í skóla eða verulegum skólaerfiðleikum, líkamlegu ofbeldi eða alvarlegum hótunum, vímuefnanotkun eða misnotkun áfengis. MST gerir þá kröfu að barnið búi heima og miðar að því að ekki þurfi að koma til vistunar utan heimilis. MST er rannsökuð og gagnreynd meðferð sem byggir á þekktum aðferðum eins og fjölskyldumeðferð, hugrænni atferlismeðferð og atferlismótun. Undanfarin ár hefur MST meðferð verið innleidd í 12 þjóðlöndum að Íslandi meðtöldu.