Samanburður á tölulegum upplýsingum Barnaverndarstofu á fyrsta ársfjórðungi 2009 og 2010

25 maí 2010

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu þrjá mánuði áranna 2009 og 2010. Einnig kemur fram fjöldi umsókna um þjónustu þeirra úrræða sem rekin eru á vegum Barnaverndarstofu, fyrstu þrjá mánuði áranna 2009 og 2010.

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 fjölgaði tilkynningum til barnaverndarnefnda um 3% samanborið við fyrstu þrjá mánuði ársins 2009. Nokkur munur er eftir landsvæðum en tilkynningum fækkaði lítillega á höfuðborgarsvæðinu en fjölgaði á landsbyggðinni um 10%. Flestar tilkynningar vörðuðu eftir sem áður áhættuhegðun barna eða 49,2% tilkynninga fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 en 44,7% fyrstu þrjá mánuði ársins 2010. Þá hækkaði hlutfall tilkynninga þar sem um heimilisofbeldi var að ræða frá því að vera 3,7% tilkynninga fyrstu þrjá mánuið ársins 2009 í 5,8% fyrstu þrjá mánuði ársins 2010.

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 var 2.011 börn en 1.993 börn sama tímabil árið 2010. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekinn er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningar.

Umsóknum um vistun barna á meðferðarheimili fjölgaði fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 miðað við sama tímabil árið á undan. Fyrstu þrjá mánuði árisns 2009 voru 38 umsóknir en fjölgaði í 48 sama tímabil árið 2010.

Hér má sjá skýrsluna í heild og sundurliðun á samanburði vegna tilkynninga til barnaverndarnefnda og upplýsingar varðandi umsóknir um þjónustu á vegum Barnaverndarstofu fyrir umrætt tímabil.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica