Ný heimasíða Stuðla
Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga hefur tekið í notkun nýja heimasíðu studlar.is en þar er að finna ýmislegt efni um starfsemina. Starfsemin á Stuðlum skiptist í tvennt: Meðferðardeild þar sem fram fer greining og meðferð og lokaða deild (neyðarvistun) þar sem fram fer gæsla og mat. Einkunnarorð Stuðla eru virðing - vöxtur - heiðarleiki og traust – frelsi og taka allar starfsaðferðir mið af þeim reglum og reglugerðum sem félags- og tryggingamálaráðuneyti og Barnaverndarstofa hafa sett um starfsemi meðferðarheimila. Vímuefnaeftirlit á Stuðlum er virkt og gerðar reglulegar leitir í vistarverum unglinga, húsnæði og við umhverfi Stuðla.Samstarf er við Fjölkerfameðferð Barnaverndarstofu (MST) og er einnig unnið eftir hugmyndafræði Sáttamiðlunar (Restorative Justice). Þá hefur ART eða Aggression Replacement Training verið nýtt í meðferð á Stuðlum frá því 2007.
Þann 17. maí sl. var umfjöllun um Stuðla í Íslandi í dag á Stöð 2 þar sem farið var yfir starfsemina og tekið viðtal við nokkra starfsmenn. Hér má nálgast umfjöllunina sem birtist á Stöð 2.