Stuðningur við foreldra með þroskahömlun
Fjölskyldan er grundvallareining samfélagsins og gegna stjórnvöld mikilvægu hlutverki við að styðja fjölskyldur almennt og þó einkum foreldra. Foreldrahæfni skiptir miklu máli fyrir samfélagið og framtíð þess. Því ber að stuðla að bættri foreldrahæfni, styðja foreldra og tryggja að réttindi barna séu virt. Ýmsir þættir hafa áhrif á foreldrahæfni s.s. félagsleg staða, andlegt og líkamlegt heilsufar, streita og almenn líðan foreldra. Foreldrar með þroskahömlun eru sérstaklega viðkvæmur hópur og hafa erlendar rannsóknir sýnt að þeir eru í mikilli áhættu varðandi það að missa forsjá barna sinna sökum skertrar foreldrahæfni. Mikilvægt er að fagfólk sem sinnir stuðningi við börn og fjölskyldur vinni með það að leiðarljósi að þeir séu samherjar foreldra og aðstoði þá við að sinna foreldrahlutverkinu sem allra best.Á málstofu um barnavernd sem haldin var 31. maí 2010 hjá Barnaverndarstofu í samstarfi við Rannsóknasetur í fötlunarfræðum fjallaði dr. Maurice Feldman um færnimiðað mat og íhlutun fyrir foreldra með þroskahömlun. Benti hann á að í mörgum löndum hafi mat á foreldrahæfni foreldra með þroskahömlun ekki þótt viðunandi. Lýsti hann aðferð varðandi mat og stuðning við þessar fjölskyldur sem hann hefur þróað og leitt hefur til aukinnar foreldrahæfni og að fleiri fjölskyldur hafa haldið saman.
Dr. Maurice Feldman er kanadískur prófessor sem er leiðandi í heiminum í dag á sviði rannsókna, þróunar og mats á foreldrafræðslu fyrir foreldra með þroskahömlun sjá nánar á slóðinni http://www.brocku.ca/disabilitystudies/faculty/maurice.php
Á málstofunni var vakin athygli á bókinni „Parents with Intellectual Disabilities – Past, Present and Futures“ sem kom út í apríl 2010. Ritstjórn bókarinnar var í höndum Gwynnyth Llewellyn, Rannveigar Traustadóttur, David McConnell og Hönnu Bjargar Sigurjónsdóttur. Upplýsingar um bókina má nálgast á www.wiley.com