10. október - alþjóðageðheilbrigðisdagurinn
Árlega er 10. október helgaður geðheilbrigðismálum um allan heim. Á Íslandi hefur í áranna rás verið haldið upp á daginn með margvíslegu móti og í ár verður haldið upp á daginn í göngugötunni í Mjódd. Þema ársins er: Geðheilsa og langvinn veikindi: þörf fyrir samfellda og samhæfða þjónustu.Þema hvers árs er ákveðið með hliðsjón af samþykktum heimssamtaka um geðheilbrigði - WFMH: http://www.wfmh.org/
Sunnudaginn 10. október hefst dagskrá alþjóða geðheilbrigðisdagsins í göngugötunni í Mjódd, Breiðholti, kl. 13:00 og stendur til kl. 16:30. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á vefsíðunni: www.10okt.com.