Sumarhátíðir - sýnum ábyrgð!

21 maí 2012

Miðvikudaginn 23. maí nk heldur Náum áttum - samstarfshópur um fræðslu- og forvarnir síðasta fund vetrarins á Grand hótel kl. 08.15 - 10.00. Fjallað verður um sumarhátíðir á Íslandi, framkvæmd þeirra og ábyrgðina sem fylgir hátíðarhaldi eins og þjóðhátíð, bæjarhátíð, útihátíð eða hestamóti. Farið verður yfir atriði eins og markmið þeirra, regluverk og viðbúnað sveitarfélags og annarra mótshaldara.

Fyrirlesarar eru þrír: Eyrún Jónsdóttir frá neyðarmóttökunni fjallar um fórnarkostnaðinn, Rúnar Halldórsson félagsráðgjafi ræðir um útihátíðir á Suðurlandi og viðbúnað sveitarfélaga og Tómas Guðmundsson frá Akranesstofu fjallar um hátíðina "Írskir dagar" sem haldnir eru á Akranesi.

Að loknum erindum eru pallborðsumræður og í pallinn bætast þá Stefán Eiríksson lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, Ómar Bragi Stefánsson frá UMFÍ, Sveinbjörn Kristjánsson frá SAMAN hópnum og fulltrúi 100 karla hópsins sem vakti m.a. athygli á nauðgunarmálum frá síðasta sumri. Fundurinn er öllum opinn en þátttökugjaldið, 1500 krónur, er með morgunverði sem hefst kl. 08.15. Skráning er fyrir kl. 15:00 þriðjudaginn 22. maí á http://naumattum.is/page/skraning

Fundarstjóri verður Sölvi Tryggvason, fjölmiðlamaður.

Nýjustu fréttir

Hjólabrettastelpa

09. mar. 2023 : Málstofa 3 – áhættuhegðun og líðan barna og unglinga á Covidtímum

Málstofa Barna-og fjölskyldustofu “Barnavernd á Covidtímum”.

Lesa meira
Kona á skrifstofu

20. feb. 2023 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndar á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022.

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa tók við. Mánaðarlega skiluðu barnaverndarnefndir tölulegum upplýsingar varðandi tilkynningar, til Barnaverndarstofu og er nú sömu upplýsingum skilað til Barna- og fjölskyldustofu. Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022. 

Lesa meira

13. feb. 2023 : Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar og miðlalæsi. Morgunverðarfundur - Náum Áttum, miðvikudaginn 15.02.2023

Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar og miðlalæsi - hver er staðan og hvernig ætti að kenna?

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica