Samanburður á fjölda tilkynninga fyrstu 3 mánuði 2011 og 2012

16 júl. 2012

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu þrjá mánuði áranna 2011 og 2012. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu þrjá mánuði áranna 2011 og 2012.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um 12,7% fyrstu þrjá mánuðum ársins 2012 samanborið við fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Fjöldi tilkynninga var 1.879 fyrstu þrjá mánuði ársins 2012, en 2.153 fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Fleiri tilkynningar bárust um drengi, en stúlkur, en var hlutfall tilkynninga vegna drengja 54,2% fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2012. Kynjaskipting vegna tilkynninga í sískráningu liggur fyrir frá árinu 2012. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 12,5% og um 13,3% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 37,4% tilkynninga fyrstu þrjá mánuði ársins 2012, en 43,7% fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Alls voru 36,6% tilkynninga fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 vegna vanrækslu, en 32,0% fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 var 25,5%, en 23,4% fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Hlutfall tilkynninga fyrstu þrjá mánuði árisins 2012 vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,5%, en 1% fyrstu þrjá mánuði ársins 2011.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 17 umsóknir um Fjölkerfameðferð (MST) fyrstu þrjá mánuði ársins 2012, en 19 umsóknir fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.
Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði á fyrstu þremur mánuðum ársins 2012 miðað við fyrstu þrjá mánuði árið á undan. Umsóknir voru 21 fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 en 28 fyrstu þrjá mánuði ársins 2011. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fækkaði úr 46 í 29 á umræddu tímabili.

Í eftirfarandi töflum má sjá sundurliðun á þessum samanburði.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica