Samanburður á fjölda tilkynninga fyrstu 6 mánuði 2011 og 2012

15 okt. 2012

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir fyrstu sex mánuði áranna 2011 og 2012. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu sex mánuði áranna 2011 og 2012.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um 9,3% fyrstu sex mánuðum ársins 2012 samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2011. Fjöldi tilkynninga var 4.053 fyrstu sex mánuði ársins 2012, en 4.468 fyrstu sex mánuði ársins 2011. Fleiri tilkynningar bárust um drengi, en stúlkur, en var hlutfall tilkynninga vegna drengja 53,2% fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2012. Kynjaskipting vegna tilkynninga í sískráningu liggur fyrir frá árinu 2012. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 12,5%, en fjöldi tilkynninga á landsbyggðinni var nánast sá sami. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 40,4% tilkynninga fyrstu sex mánuði ársins 2012, en 46,0% fyrstu sex mánuði ársins 2011. Alls voru 35,7% tilkynninga fyrstu sex mánuði ársins 2012 vegna vanrækslu, en 30,2% fyrstu sex mánuði ársins 2011. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi fyrstu sex mánuði ársins 2012 var 23,3%, en 22,8% fyrstu sex mánuði ársins 2011. Hlutfall tilkynninga fyrstu sex mánuði árisins 2012 vegna þess að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,6%, en 1% fyrstu sex mánuði ársins 2011.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 31 umsókn um MST fyrstu sex mánuði ársins 2012, en 40 umsóknir fyrstu sex mánuði ársins 2011. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.
Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði fyrstu sex mánuði ársins 2012 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 38 fyrstu sex mánuði ársins 2012 en 49 fyrstu sex mánuði ársins 2011. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fækkaði úr 74 í 57 á umræddu tímabili.

Hér er að finna sundurliðun á þessum samanburði.

Nýjustu fréttir

Hjólabrettastelpa

09. mar. 2023 : Málstofa 3 – áhættuhegðun og líðan barna og unglinga á Covidtímum

Málstofa Barna-og fjölskyldustofu “Barnavernd á Covidtímum”.

Lesa meira
Kona á skrifstofu

20. feb. 2023 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndar á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022.

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa tók við. Mánaðarlega skiluðu barnaverndarnefndir tölulegum upplýsingar varðandi tilkynningar, til Barnaverndarstofu og er nú sömu upplýsingum skilað til Barna- og fjölskyldustofu. Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022. 

Lesa meira

13. feb. 2023 : Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar og miðlalæsi. Morgunverðarfundur - Náum Áttum, miðvikudaginn 15.02.2023

Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar og miðlalæsi - hver er staðan og hvernig ætti að kenna?

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica