Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl!
Valgerður hefur einnig lokið námi í kennslu- og uppeldisfræði til kennsluréttinda og BA-prófi í stjórnmálafræði. Hún opnaði vefsíðuna stjúptengsl.is árið 2004 og stofnaði Félag stjúpfjölskyldna í kjölfarið. Hún hefur haldið fjölmörg erindi og námskeið um málefni stjúpfjölskyldna og kennt bæði á framhald- og háskólastigi.
Bókin er skrifuð fyrir almenning, nemendur og fagfólk sem vinnur með börnum og fjölskyldum, s.s. kennara, félagsráðgjafa, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og lögfræðinga. Einnig þá sem vinna við rannsóknir á högum barna og fjölskyldana og koma að opinberri stefnumótun og löggjöf. Umfjöllunarefnið er stjúpfjölskyldur, margbreytileiki þeirra og hvernig þær takast á við daglegt líf sem er oft nokkuð frábrugðið ímyndinni um „hefðbundna“ kjarnafjölskyldu. Höfundur reynir að bregða upp ólíkri sýn fjölskyldumeðlima á algengar uppákomur og aðstæður í stjúpfjölskyldum. Kaflarnir tíu spanna allt frá „stjúpblindu“ samfélagi sem gerir ekki ráð fyrir stjúptengslum í opinberri stefnumótun yfir í hugleiðingar um það hver tilheyrir fjölskyldunni þar sem fullorðnum og börnum líður stundum eins og þau séu á jaðri fjölskyldunnar. Í hverjum kafla er að finna fjölda dæma til skýringar og umræðna og endar hver kafli á efni til íhugunar sem ætlað er að hjálpa fólki að finna nýjar leiðir til að takast á við fjölskyldulífið á uppbyggilegan hátt. Um er að ræða fyrstu bók sinnar tegundar hér á landi og er fengur að því að fá lesefni á íslensku fyrir stjúpfjölskyldur sem eru að móta samskipti sín. Höfundur byggir á fræðilegum heimildum og vísar í meðferðarreynslu með fjölda lýsandi dæma. Bókin er því ákjósanlegt lesefni fyrir verðandi sem starfandi félagsráðgjafa og aðrar fagstéttir sem vinna í velferðarþjónustu á Íslandi.
Þú getur séð sýnishorn úr bókinni með því að smella hér eða á forsíðu bókarinnar.