Barnaverndarstofa birtir nú hluta II af ársskýrslu sinni, sem fjallar um starfsemi barnaverndarnefnda á árinu 2011.

19 des. 2012

Í september sl. gaf Barnaverndarstofa út ársskýrslu vegna áranna 2008-2011, en þar var að finna í hluta II upplýsingar frá barnaverndarnefndunum úr sískráningu nefndanna fyrir árið 2011. Nú liggja hins vegar fyrir endanlegar upplýsingar frá nefndunum vegna ársins 2011. Heildarfjöldi tilkynninga á árinu 2011 var 8.708 tilkynningar, sem er um 6% fækkun frá árinu á undan.

Tilkynningarnar á árinu 2011 vörðuðu 4.911 börn, en árið 2010 var tilkynnt um 5.256 börn. Tilkynning verður að barnaverndarmáli þegar ákveðið er að hefja könnun máls. Heildarfjöldi barnaverndarmála á árinu 2011 var 4.356 mál, sem er um 2,5% fjölgun frá árinu á undan. Á árinu 2011 voru mál um 60% þeirra barna sem tilkynnt  var um tekin til könnunar eða voru þegar til könnunar eða meðferðar og er það svipað hlutfall og árið á undan. Hér má sjá skýrsluna í heild.

Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica