112 er barnanúmerið
Mikilvægt er að börn og foreldrar viti hvert á að leita þegar grunur er um vanrækslu eða ofbeldi

Mikilvægt er að börn og foreldrar viti hvert á að leita þegar grunur er um vanrækslu eða ofbeldi

14 feb. 2013

Í grein Steinunnar Bergmann félagsráðgjafa á Barnaverndarstofu sem birtist í Fréttablaðinu þann 14 febrúar kemur m.a. fram að neyðarlínan - 112 - tekur á móti tilkynningum samkvæmt umboði frá barnaverndarnefndum landsins.

Þar segir ennfremur að Barnaverndarstofa hafði frumkvæði að samstarfinu árið 2003 en markmiðið er að hægt verði að hafa samband við allar barnaverndarnefndir landsins gegnum 112 á öllum tímum sólarhringsins og auðvelda þannig almenningi að rækja lagaskyldur sínar um að tilkynna til barnaverndarnefnda. 
Einnig skrifar Steinunn að börn eru frá fæðingu háð umönnun foreldra sinna og hafa gæði umönnunarinnar úrslita áhrif á velferð barna og fullorðinslíf þeirra. Þó allir foreldrar vilji reynast barni sínu vel eru ýmsir álagsþættir sem hafa áhrif á foreldrahæfni þeirra, bæði ytri og innri þættir eins og fjárhagsvandi, veikindi og skortur á stuðningi. Þessir þættir spila oft saman, sem eykur álagið enn frekar og hefur umhverfið þannig veruleg áhrif á það hvernig til tekst. Afríska máltækið „það þarf heilt þorp til að ala upp barn" á vel við en vanræksla, ofbeldi og áhættuhegðun barna eru þættir sem tengjast innbyrðis. Því er mikið í húfi að stofnanir samfélagsins séu á varðbergi í því skyni að skima fyrir áhættuþáttum.

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica