Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir árin 2011 og 2012.

19 feb. 2013

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði úr 8.698 í 7.854 á árinu 2012. Mest var fækkunin á tilkynningum frá lögreglu. Umsóknum um MST fækkaði úr 82 í 77, umsóknum um meðferðarheimili fækkaði 92 í 68 og umsóknum um fósturheimili fækkaði úr 144 í 108.
Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir árin 2011 og 2012. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir árin 2011 og 2012.


Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um tæplega 10% á árinu 2012 samanborið við árið 2011. Fjöldi tilkynninga var 7.854 á árinu 2012, en 8.698 á árinu 2011. Fleiri tilkynningar bárust um drengi, en stúlkur, en hlutfall tilkynninga vegna drengja var 55,2,0% á árinu 2012. Kynjaskipting vegna tilkynninga í sískráningu liggur fyrir frá árinu 2012. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um tæplega 13% og rúmlega 2% á landsbyggðinni. Mest var fækkunin á tilkynningum frá lögreglu, en hlutfall þeirra á árinu 2012 var 46%, en 48,9% árið á undan. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar. Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barna eða 41,0% tilkynninga á árinu 2012, en 44,4% á árinu 2011. Alls voru 35,4% tilkynninga vegna vanrækslu á árinu 2012, en 31,6% á árinu 2011. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi á árinu 2012 var 22,9%, en 23,2% árið á undan. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu lækkaði líttillega úr 0,9% árið 2011 í 0,7% árið 2012.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Alls bárust 77 umsóknir um MST á árinu 2012, en 82 umsóknir árið á undan. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks. Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði á árinu 2012 miðað við árið á undan. Umsóknir voru 68 á árinu 2012 en 92 á árinu 2011. Umsóknum um fósturheimili fyrir börn fækkaði úr 144 í 108 á umræddu tímabili. Fækkun var mest í umsóknum um styrkt fóstur, en þeim umsóknum fækkaði um tæplega helming.

Hér er hægt að lesa skýrsluna í heild sinni.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica