Ríkisstjórnin samþykkir 110 milljón króna aukafjárveitingu til kaupa á nýju Barnahúsi 

8 apr. 2013

Á fundi með velferðarráðherra, innanríkisráðherra og forsætisráðherra, kom fram að álitlegt hús fyrir Barnahús hafi þegar verið fundið. Kaup á því ættu að geta gengið í gegn á næstu vikum.

Eftirfarandi fréttatilkynningu er að finna á vefsíðu forsætisráðuneytisins.  Þar er einnig að finna skýrslu samráðshóps forsætisráðherra um samhæfða framkvæmd stjórnvalda við að tryggja skilvirk úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota, einkum börn.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja nú þegar 79 milljónum króna til að fjármagna forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum.

Þá hefur ríkisstjórnin lagt til að 110 milljón króna aukafjárveiting verði varið í kaup á nýju Barnahúsi en sú tillaga er háð samþykki Alþingis. Samanlagt er um að ræða 189 milljónir króna. Á fundi með velferðarráðherra, innanríkisráðherra og forsætisráðherra, kom fram að álitlegt hús fyrir Barnahús hafi þegar verið fundið. Kaup á því ættu að geta gengið í gegn á næstu vikum.

Í janúar síðastliðnum skipaði forsætisráðherra nefnd fjögurra ráðuneyta um samhæfða framkvæmd stjórnvalda til þess að sporna gegn kynferðislegu ofbeldi, eflingu lögreglu og ákæruvalds og bætt úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota, einkum börn.

Þá átti nefndin að leggja til aðgerðir um bætta skráningu, eftirlit og meðferð með dæmdum kynferðisbrotamönnum. Í nefndinni sátu Ágúst Ólafur Ágústsson formaður, frá forsætisráðuneyti, Halla Gunnarsdóttir og Þórunn Hafstein frá innanríkisráðuneyti, Ingibjörg Broddadóttir og Sindri Kristjánsson frá velferðarráðuneyti og Jóna Pálsdóttir frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Nefndin er viðbragð við gríðarlega sterkum viðbrögðum samfélagsins við umfjöllun Kastljóss um kynferðisofbeldi gegn börnum. Holskefla kæra hafa borist lögreglunni með tilheyrandi álagi fyrir rannsóknaraðila og ákæruvald. Meðal annars kom fram á fundinum að 40 börn væru á biðlista um að komast í viðtal í Barnahúsi en um tvö börn koma þangað á hverjum degi. Það er í fyrsta skiptið sem biðlisti er í þetta mikilvæga hús.

Það gamla hefur annað um 270-300 börnum á ári hverju. Það verður selt, og andvirði þess meðal annars nýtt til þess að kaupa nýja Barnahúsið.

Alls leggur nefndin til 27 tillögur til úrbóta og er heildarkostnaður við þær um 290 milljónir króna þar með talin kaup á nýju Barnahúsi. Í ljósi þess neyðarástands sem hefur skapast vegna kynferðisbrota gegn börnum var tillögunum forgangsraðað eftir mikilvægi og var það niðurstaða nefndarinnar að 15 tillögur þyldu enga bið. Þar er meðal annars gert ráð fyrir 11 nýjum stöðugildum til mæta brýnni þörf.

Hér eru forgangstillögur nefndarinnar:

1. Tillaga um kaup á nýju Barnahúsi en þessi tillaga er háð samþykki Alþingis.
2. Tillaga um landssamráð barnaverndaryfirvalda, lögreglu og ákæruvalds.
3. Tillaga um svæðissamráð sveitarfélaga, lögreglustjóra og barnaverndarnefnda.
4. Tillaga um fjölgun sérfræðinga í Barnahúsi.
5. Tillaga um stuðning gagnvart aðstandendum brotaþola.
6. Tillaga um eflingu Vitundarvakningar gegn kynferðislegu ofbeldi.
7. Tillaga um gerð fræðsluefnis um kynferðisofbeldi.
8. Tillaga um aukinn stuðning við félagasamtök sem sinna þjónustu fyrir brotaþola.
9. Tillaga um fjölgun lögreglumanna sem sinna rannsókn kynferðisbrota.
10. Tillaga um ráðningu aðstoðarsaksóknara við embætti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
11. Tillaga um sálgæslu fyrir lögreglumenn og ákærendur í kynferðisbrotum gegn börnum.
12. Tillaga um ráðningu saksóknara við embætti ríkissaksóknara.
13. Tillaga um áhættumat á dæmdum kynferðisbrotamönnum.
14. Tillaga um skráningu kynferðisbrotamanna.
15. Tillaga um ráðningu sálfræðings við embætti Fangelsismálastofnunar.

Kostnaðurinn við forgangstillögur nefndarinnar á þessu ári er 79 milljónir króna fyrir utan kaup á nýju Barnahúsi. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að mæta þessum kostnaði nú þegar vegna þess neyðarástands skapast hefur vegna kynferðisbrota gegn börnum.

Þá leggur ríkisstjórnin til að tillagan um kaup á nýju Barnahúsi fyrir allt að 110 milljónir króna að teknu tilliti til söluandvirðis á núverandi húsnæði sem bætist við umrædda upphæð, verði tryggð með aukafjárveitingu með fyrirvara um samþykki Alþingis.

Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að 189 milljónum kr. verði á þessu ári varið í kaup á nýju Barnahúsi og aðrar forgangstillögur til að bregðast við því neyðarástandinu.

Hér fyrir neðan má finna aðrar tillögur nefndarinnar en ýmsar aðrar úrbætur eru nú þegar komnar til skoðunar hjá viðkomandi ráðuneytum og má þar nefna skýrslutökur barna, rannsóknarheimildir lögreglu og mótun tillagna að framtíðarskipan ákæruvaldsins

Aðrar tillögur nefndarinnar sem lagt er til að ráðist verði í á næsta ári:

1. Tillaga um miðlæga stuðnings- og ráðgjafareiningu fyrir brotaþola
2. Tillaga um ráðningu sálfræðings á geðsvið Landspítalans fyrir fullorðna brotaþola
3. Tillaga um meðferð fyrir kynferðisbrotamenn
4. Tillaga um úrræði fyrir þá sem kunna að fremja kynferðisbrot gegn börnum
5. Tillaga um læknisskoðanir í Barnahúsi og verkaskiptingu við neyðarmóttöku
6. Tillaga um rannsóknarsjóð um forvarnir og kynferðislegt ofbeldi
7. Tillaga um fræðslu um heimilisofbeldi
8. Tillaga um klám og kynheilbrigði
9. Tillaga um miðlægt gagnasafn
10. Tillaga um endurmenntun og þjálfun lögreglumanna sem fást við kynferðisbrot
11. Tillaga um fjölgun félagsráðgjafa við embætti Fangelsismálastofnunar
12. Tillaga um upplýsingar úr sakarvottorði

Heildarkostnaður við allar tillögurnar og þar með talið forgangstillögurnar, er um 290 milljónir króna.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica