Fjölgun tilkynninga árið 2013

Í samantekt Barnaverndarstofu er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda fyrir árin 2012 og 2013.

12 feb. 2014

Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir árin 2012 og 2013. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir árin 2012 og 2013.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda
Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 9,3% á árinu 2013 samanborið árið 2012. Fjöldi tilkynninga var 8.610 á árinu 2013, en 7.881 árið á undan. Fleiri tilkynningar bárust um drengi, en stúlkur, en hlutfall tilkynninga vegna drengja var 54,6% á árinu 2013. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 8% en fjölgunin var rúmlega 12% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar voru vegna áhættuhegðunar barns eða 36,9% tilkynninga, en tilkynningar vegna vanrækslu voru 36,1% af heildarfjölda tilkynninga. Fyrir sama tímabil árið á undan voru flestar tilkynningar vegna áhættuhegðunar barns eða 41,0%, en tilkynningar vegna vanrækslu voru 35,4% af heildarfjölda tilkynninga á árinu 2012. Hlutfall tilkynninga um ofbeldi hækkaði á árinu 2013 úr 22,9% á árinu 2012 í 26,2% á árinu 2013. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,7% bæði árin.

Hlutfall tilkynninga þar sem tilkynnt var um vanrækslu og fram kom að foreldrar voru í áfengis-og/eða fíkniefnaneyslu var 8,6% á árinu 2012, en hækkaði í 9,2% á árinu 2013. Í tilkynningum um ofbeldi var hlutfall tilkynninga þar sem um heimilisofbeldi var að ræða 5,6% á árinu 2012, en lækkaði í 5,2% á árinu 2013.

Umsóknir til Barnaverndarstofu
Umsóknum um Stuðla fækkaði á árinu 2013 miðað við árið á undan. Umsóknir voru 34 árið 2013 en 43 árið á undan. Umsóknum um meðferðarheimili fækkaði úr 25 umsóknum árið 2012 í 21umsókn árið 2013. Alls bárust 82 umsókn um MST á árinu 2013, sem er fjölgun frá árinu á undan, en þá bárust 77 umsókn. Umsóknum um ábendingu um hæfa fósturforeldra fjölgaði úr 108 í 141 á umræddu tímabili.

Í Barnahúsi fjölgaði rannsóknarviðtölum úr 209 á árinu 2012 í 252 á árinu 2013. Skýrslutökum fjölgaði úr 53 á árinu 2012 í 96 á árinu 2013, en könnunarviðtöl voru 156 bæði árin. Stúlkur voru í meirihluta þeirra barna sem komu í rannsóknarviðtöl, 71,8% á árinu 2013 og 69,9% á árinu 2012.
Í eftirfarandi töflum má sjá sundurliðun á þessum samanburði. 


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica