Tilkynningum fjölgar um 3,1% milli ára

Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu árin 2013 og 2014

11 feb. 2015

Tilkynningar til barnaverndarnefnda

Barnaverndarstofa birtir nú samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrir árin 2013 og 2014. Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir árin 2013 og 2014.

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 3,1% á árinu 2014 miðað við árið á undan. Fjöldi tilkynninga var 8.893 á árinu 2014, en 8.623 árið á undan. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 3,0% en fjölgunin var 3,5% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar á árinu 2014 voru vegna vanrækslu eða 39,8% tilkynninga. Hlutfall tilkynningar vegna vanrækslu árið á undan var 36,2% af heildarfjölda tilkynninga. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis var 22,5% á árinu 2014, en 26,2% árið á undan. Hlutfall tilkynninga vegna áhættuhegðunar var 37,1% á árinu 2014, en 36,9%  árið á undan. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu lækkaði úr 0,8% á árinu 2013 í 0,6% á árinu 2014.

Hlutfall tilkynninga þar sem tilkynnt var um vanrækslu og fram kom að foreldrar voru í áfengis-og/eða fíkniefnaneyslu var 11,1% á árinu 2014, en 9,1% á árinu 2013. Í tilkynningum um ofbeldi var hlutfall tilkynninga þar sem um heimilisofbeldi var að ræða 5,5% á árinu 2014 en 5,2% árið á undan.

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á árinu 2014 var 7.194 börn, en sambærileg tala fyrir árið á undan var 7.046 börn. Þess ber að geta að tölur um fjölda barna sem tilkynnt var um eru fengnar þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki alltaf um að ræða fjölda einstaklinga yfir ákveðið tímabil heldur samanlagðan heildarfjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.

Umsóknir til Barnaverndarstofu

Umsóknum um meðferð fjölgaði milli áranna 2013 og 2014. Umsóknir um Stuðla voru 46 á árinu 2014 en 34 árið á undan. Umsóknir um meðferðarheimili voru 30 á árinu 2014, en 21 árið á undan. Alls bárust 95 umsókn um MST á árinu 2014 en 82 árið á undan. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks.

Flestar umsóknir um Stuðla og meðferðarheimili voru frá Reykjavík og nágrenni Reykjavíkur eða 71,8% umsókna um Stuðla og 70,0% fyrir meðferðarheimili. Árið á undan var hlutfall umsókna frá Reykjavík og nágrenni Reykjavíkur 52,9% fyrir Stuðla og 66,6% fyrir meðferðarheimili. Hlutfall umsókna um MST frá Reykjavík var 40,0% á árinu 2014 en 60,0% umsókna var frá nefndum í nágrenni Reykjavíkur, en þjónustusvæði MST nær yfir 60-90 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Fleiri umsóknir um Stuðla, meðferðarheimili og MST bárust fyrir drengi en stúlkur bæði árin.

Beiðnir til Barnaverndarstofu um fósturheimili fækkaði úr 141 í 120 á umræddu tímabili. Flestar beiðnir á árinu 2014 voru frá Reykjavík og nágrenni Reykjavíkur eða 62,5% umsókna, en 37,5% beiðna voru frá nefndum á landsbyggðinni. Fleiri beiðnir bárust fyrir stúlkur á árinu 2014, en fleiri fyrir drengi árið á undan.

Í Barnahúsi fækkaði rannsóknarviðtölum úr 253 á árinu 2013 í 221 á árinu 2014. Skýrslutökum fækkaði úr 96 í 77 milli ára en könnunarviðtölum fækkaði úr 157 í 144. Stúlkur voru í meirihluta þeirra barna sem komu í rannsóknarviðtöl, 67,4% á árinu 2014, en 71.8% árið á undan.

Vistanir á neyðarvistun Stuðla voru 163 á árinu 2014, en 206 árið á undan. Vistunardögum fækkaði úr 1.385 í 1.102. Fjöldi einstaklinga var 81 á árinu 2014 en 82 árið á undan og voru fleiri drengir vistaðir en stúlkur bæði árin. Þess ber að geta að frá júlí fram í desember 2014 fækkaði rýmum í neyðarvistun úr fimm í þrjú m.a. vegna breytinga á neyðarvistun. Endurbætt deild var formlega opnuð þann 12. desember sl. og var herbergjum deildarinnar fjölgað um eitt þannig að nú eru rými fyrir 6 börn í stað þeirra 5 plássa sem áður var. Einnig hefur deildinni verið kynjaskipt þannig að nú er hægt að vista drengi og stúlkur í aðskildum rýmum. Auk þessa hefur verið útbúið sérstakt neyðarrými sem ætlað er í móttöku barna í slæmu ásigkomulagi þannig að þau þurfi ekki að vera innan um önnur börn á meðan þau eru að jafna sig.

Umsóknir um leyfi til að gerast fósturforeldrar voru 61 á árinu 2014 en 69 árið á undan. Flestar umsóknir voru frá Reykjavík og nágrenni.

Hér má nálgast skýrsluna ásamt töflum með sundurliðun á þessum samanburði.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica