Flestar tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 voru vegna vanrækslu foreldra á börnum sínum

Samanburður á fjölda tilkynninga og umsókna til Barnaverndarstofu á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 og 2014

28 maí 2015

Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrstu þrjá mánuði áranna 2014 og 2015.  Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu þjá mánuði áranna 2014 og 2015.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um tæplega 18% á fyrstu þremur mánuði ársins 2015 miðað við fyrstu þrjá mánuði ársins 2014. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði  um 13,9% en fækkunin var 26,7% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 voru vegna vanrækslu eða 38,3% tilkynninga. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis var 27,7%, vegna áhættuhegðunar barna var 33,0% og hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 1,0% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015. Hlutfall tilkynninga þar sem tilkynnt var um vanrækslu og fram kom að foreldrar voru í áfengis-og/eða fíkniefnaneyslu var 11,8% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 og í tilkynningum um ofbeldi var hlutfall tilkynninga þar sem um heimilisofbeldi var að ræða 7,4% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015.

Umsóknir til Barnaverndarstofu

Umsóknum um meðferð fækkaði á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknum um Stuðla fækkaði úr 17 umsóknum í 6 umsóknir, umsóknum um meðferðarheimili fækkaði úr 7 umsóknum í 5 umsóknir og umsóknum um MST fækkaði úr 32 umsóknum í 21 umsókn. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks. Frá því í febrúar 2015 hefur þjónusta MST náð til alls landsins, en áður var þjónustusvæðið miðað við 60 min. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fleiri umsóknir um Stuðla og meðferðarheimili voru vegna stúlkna fyrstu þrjá mánuði ársins 2015, en í MST voru umsóknir fyrir drengi fleiri.

Beiðnum til Barnaverndarstofu um fósturheimili fækkaði úr 37 í 21 á umræddu tímabili. Flestar beiðnir voru frá Reykjavík á fyrstu þremur mánuðum bæði árin, en beiðnum fækkaði frá nágrenni Reykjavíkur og landsbyggðinni á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 miðað við sama tímabil árið á undan

Í Barnahúsi fjölgaði rannsóknarviðtölum úr 46 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2014 í 61 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015. Skýrslutökum fjölgaði úr 14 í 37 milli ára en könnunarviðtölum fækkaði úr 32 í 24. Greiningar- og meðferðarviðtölum fjölgaði úr 27 viðtölum í 36 viðtöl. Stúlkur voru í meirihluta þeirra barna sem komu í rannsóknarviðtöl, 80,3% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015, en 67,4% fyrir sama tímabil árið á undan.

Vistanir á neyðarvistun Stuðla voru 41 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 en 51 fyrir sama tímabil árið á undan. Vistunardögum fækkaði úr 321 í 294. Fjöldi einstaklinga var 27 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015, en 33 fyrir sama tímabil árið á undan og voru fleiri stúlkur vistaðar á þessu tímabili á árinu 2015, en fleiri drengir  á sama tímabili árið á undan.

Umsóknir um leyfi til að gerast fósturforeldrar voru 13 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015, en 12 fyrir sama tímabil árið á undan. Flestar umsóknir voru frá Reykjavík og nágrenni.

Hér má sjá skýrsluna í heild sinni.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica