Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda fyrstu sex mánuði áranna 2014 og 2015

15 sep. 2015

Barnaverndarstofa birtir nú samantekt sem felur í sér samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrstu sex mánuði áranna 2014 og 2015. 

Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrstu sex mánuði áranna 2014 og 2015.  Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu sex mánuði áranna 2014 og 2015.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um rúmlega 9% á fyrstu sex mánuði ársins 2015 miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2014. Fjöldi tilkynninga fyrstu sex mánuði ársins 2015 var 4.346 tilkynningar, en 4.787 fyrir sama tímabil árið á undan. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði  um 5,3% en fækkunin var 17,6% á landsbyggðinni. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

Flestar tilkynningar á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 voru vegna vanrækslu eða 38,5% tilkynninga. Hlutfall tilkynningar fyrstu sex mánuði ársins 2014 vegna vanrækslu var 39,8%. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis var 26,5% fyrir sama tímabil á árinu 2015, en 22,3% árið á undan. Hlutfall tilkynninga vegna áhættuhegðunar barna var 34,3% fyrir sama tímabil á árinu 2015, en 37,3%  árið á undan. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,6% á fyrstu sex mánuðunum bæði árin. Tilkynningum um vanrækslu og áhættuhegðun barna fækkaði, en tilkynningum um ofbeldi fjölgaði.

Hlutfall tilkynninga þar sem tilkynnt var um vanrækslu og fram kom að foreldrar voru í áfengis-og/eða fíkniefnaneyslu var 11,8% á fyrstu sex mánuðum ársins 2015, en 10,3% fyrir sama tímabil árið á undan. Í tilkynningum um ofbeldi var hlutfall tilkynninga þar sem um heimilisofbeldi var að ræða 7,3% á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 en 5,2% fyrir sama tímabil árið á undan.  Flestar tilkynningar bárust frá lögreglu, eða 41,7% á fyrstu sex mánuðum ársins 2015, hlutfallið var 44,3% fyrir sama tímabil árið á undan.

Umsóknir til Barnaverndarstofu

Umsóknum um meðferð fækkaði á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknum um Stuðla fækkaði úr 24 umsóknum í 14 umsóknir, umsóknir um önnur meðferðarheimili (Laugaland, Lækjarbakka og Háholt) voru 11 bæði árin og umsóknum um MST fækkaði úr 47 umsóknum í 44 umsóknir. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks. Frá því í febrúar 2015 hefur þjónusta MST náð til alls landsins, en áður var þjónustusvæðið miðað við 60 min. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fleiri umsóknir um Stuðla og MST voru vegna stúlkna fyrstu sex mánuði ársins 2015 en um langtímameðferðarheimili voru umsóknir fyrir drengi fleiri.

Beiðnum til Barnaverndarstofu um fósturheimili fjölgaði úr 67 í 70 á umræddu tímabili. Beiðnum um tímabundið og varanlegt fóstur fækkaði en beiðnum um styrkt fóstur fjölgaði. Flestar beiðnir voru frá Reykjavík á fyrstu sex mánuðum bæði árin, en beiðnum fækkaði frá  landsbyggðinni á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 miðað við sama tímabil árið á undan

Í Barnahúsi fjölgaði rannsóknarviðtölum úr 92 á fyrstu sex mánuðum ársins 2014 í 136 á fyrstu sex mánuðum ársins 2015. Skýrslutökum fjölgaði úr 27 í 71 milli ára en könnunarviðtöl voru 65 bæði árin. Greiningar- og meðferðarviðtölum fækkaði úr 68 viðtölum í 65 viðtöl. Stúlkur voru í meirihluta þeirra barna sem komu í rannsóknarviðtöl, 70,6% á fyrstu sex mánuðum ársins 2015, en 69,6% fyrir sama tímabil árið á undan.

Vistanir á neyðarvistun Stuðla voru 87 á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 en 99 fyrir sama tímabil árið á undan. Vistunardögum fækkaði úr 588 í 562. Fjöldi einstaklinga var 50 á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 en 52 fyrir sama tímabil árið á undan og voru fleiri drengir bæði árin.

Hér má finna töflur sem sýna sundurliðun á þessum samanburði.


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica