Samanburður á fjölda tilkynninga og fjölda umsókna um þjónustu.

22 jún. 2016

Hér er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna fyrstu þrjá mánuði áranna 2015 og 2016. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir sama tímabil. 

Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu þrjá mánuði áranna 2015 og 2016.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 1,5% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016 miðað við sama tímabil árið á undan. Fjöldi tilkynninga á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016 var 2.169 tilkynningar, en 2.137 fyrir sama tímabil árið á undan. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði lítillega en á landsbyggðinni fjölgaði tilkynningum um 10,5%. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar.

 Flestar tilkynningar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016 voru vegna vanrækslu líkt og árið á undan, en hlutfall tilkynninga vegna vanrækslu var 38,4% á fyrstu þrem mánuðum ársins 2016. Ekki voru teljandi breytingar í samanburði fyrstu þriggja mánaða áranna 2015 og 2016 varðandi einstaka flokka tilkynninga. Flestar tilkynningar bárust frá lögreglu, eða 41,7% tilkynninga á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016, hlutfallið var 40,9%  fyrir samatímabil árið á undan.

 Umsóknir til Barnaverndarstofu

Umsóknum um meðferðarúrræði á vegum Barnaverndarstofu fjölgaði um 28% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 miðað við sama tímabil árið á undan sem skýrist aðallega af fjölgun umsókna í MST meðferð. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks. Frá því í febrúar 2015 hefur þjónusta MST náð til alls landsins, en áður var þjónustusvæðið miðað við 60 min. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fleiri umsóknir bárust fyrir drengi en stúlkur á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016.

 Beiðnum til Barnaverndarstofu um fósturheimili fjölgaði fyrstu þrjá mánuði ársins 2016 um 71% eða úr 21 beiðni í 36 miðað við sama tímabilið árið á undan. Beiðnum fjölgaði mest um tímabundið fóstur. Flestar beiðnir voru frá Reykjavík bæði árin.

 Rannsóknarviðtöl í Barnahúsi skiptast í skýrslutökur fyrir dómi annars vegar og könnunarviðtöl fyrir barnaverndarnefndir hins vegnar. Rannsóknarviðtölum alls fækkaði úr 61 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015 í 59 fyrir sama tímabil árið 2016. Skýrslutökum fyrir dómi fækkaði úr 37 í 25 milli ára, en könnunarviðtölum fyrir barnaverndarnefndir fjölgaði úr 24 í 34. Skýrslutökum vegna kynferðislegs ofbeldis fækkaði á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016 miðað við sama tímabil árið á undan, en frá því í mars 2015 hefur Barnahús einnig sinnt skýrslutökum og meðferð barna sem hafa upplifað líkamlegt ofbeldi og/eða heimilisofbeldi. Börnum sem fóru í greiningar- og meðferðarviðtöl fjölgaði úr 36 í 44.

Vistanir á neyðarvistun Stuðla voru 46 á fyrstu þrem mánuðum ársins 2016 en 41 fyrir sama tímabil árið á undan. Vistunardögum fækkaði úr 294 í 244. Fjöldi einstaklinga var 37 börn á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016, en 27 börn fyrir sama tímabil árið á undan.

 Umsóknum um leyfi til að gerast fósturforeldrar fjölgaði, voru 17 á fyrstu þremur mánuðum ársins 2016, en 13 fyrir sama tímabil árið á undan. Flestar umsóknir voru frá Reykjavík og nágrenni.

Hér má sjá skýrsluna í heild sinni.

 

 

 

 

 


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica