Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda og umsókna um þjónustu fyrstu níu mánuði áranna 2014 til 2016

6 des. 2016

Endanlegar upplýsingar um fjölda tilkynninga koma fram í samtölublöðum barnaverndarnefndanna sem birtast í ársskýrslu Barnaverndarstofu. Einnig er hér að finna upplýsingar um fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu fyrir fyrstu níu mánuði áranna 2014 og 2016.

Tilkynningar til barnaverndarnefnda

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgaði um 4,3% á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 miðað við sama tímabil árið á undan. Hins vegar eru tilkynningar 2,6% færri en fyrir sama tímabil á árinu 2014. Fjöldi tilkynninga á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 var 6.634 tilkynningar, en 6.358 fyrir sama tímabil árið á undan. Tilkynningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði lítillega á fyrstu níu mánuðum ársins 2016, en á landsbyggðinni fjölgaði tilkynningum um 16,6% ef miðað er við árið á undan. Þess ber að geta að tilkynning til barnaverndarnefndar verður að barnaverndarmáli ef tekin er ákvörðun um könnun máls í kjölfar tilkynningarinnar. 

Flestar tilkynningar á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 voru vegna vanrækslu líkt og árin á unda en hlutfall tilkynninga vegna vanrækslu var 40,8% tilkynninga. Fjöldi tilkynninga varðandi vanrækslu er svipaður og árið 2014, tilkynningum um áhættuhegðun heldur áfram að fækka milli ára, en tilkynningum um ofbeldi fjölgar. Sú fjölgun skýrist fyrst og fremst af fjölgun tilkynninga vegna heimilisofbeldis. Flestar tilkynningar bárust frá lögreglu, eða 44,3% tilkynninga á fyrstu níu mánuðum ársins 2016, hlutfallið var 44,6% fyrir sama tímabil árið á undan og 45,7% á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. 

Umsóknir til Barnaverndarstofu 

Umsóknum um meðferðarúrræði á vegum Barnaverndarstofu fjölgaði úr 98 umsóknum í 109 umsóknir á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 miðað við sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 121 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. 

Umsóknir um Stuðla voru 28 talsins á fyrstu 9 mánuðum ársins 2016 miðað við 26 árið á undan. Umsóknir um Stuðla voru 33 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Umsóknir um önnur meðferðarheimili (Laugaland, Lækjarbakka og Háholt) voru 20 og fjölgaði um fjórar á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 miðað við sama tímabil árið á undan, en umsóknir um Stuðla voru 33 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Umsóknum um MST fjölgaði úr 56 umsóknum í 61 umsókn á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 miðað við sama tímabil árið á undan, en umsóknirnar voru 64 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Fjölkerfameðferð (MST) snýr að fjölskyldum unglinga með fjölþættan hegðunarvanda sem kominn er á það alvarlegt stig að vistun unglings utan heimilis er talin koma til greina. Markhópurinn eru unglingar á aldrinum 12-18 ára og fer meðferðin fram á heimilum fólks. Frá því í febrúar 2015 hefur þjónusta MST náð til alls landsins, en áður var þjónustusvæðið miðað við 60 min. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fleiri umsóknir bárust fyrir drengi en stúlkur á fyrstu níu mánuðum ársins 2016. 

Beiðnum til Barnaverndarstofu um fósturheimili fækkaði á fyrstu níu mánuði ársins 2016 úr 106 beiðnum í 101 miðað við sama tímabilið árið á undan. Beiðnir um fósturheimili voru 92 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Beiðnum um tímabundið fóstur og styrkt fóstur fækkaði, en beiðnum um varanlegt fóstur fjölgaði. Flestar beiðnir voru frá Reykjavík öll árin. 

Rannsóknarviðtöl í Barnahúsi skiptast í skýrslutökur fyrir dómi annars vegar og könnunarviðtöl fyrir barnaverndarnefndir hins vegnar. Rannsóknarviðtölum alls fækkaði úr 180 á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 í 168 fyrir sama tímabil árið 2016, en þau voru 151 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Skýrslutökum fyrir dómi fækkaði úr 97 í 85 milli ára en þær voru 48 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Skýrslutökum vegna kynferðislegs ofbeldis fækkaði á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 miðað við sama tímabil árið á undan, en frá því í mars 2015 hefur Barnahús einnig sinnt skýrslutökum og meðferð barna sem hafa upplifað líkamlegt ofbeldi og/eða heimilisofbeldi. Könnunarviðtöl fyrir barnaverndarnefndir voru 83 á fyrstu níu mánuðum áranna 2016 og 2015, en 103 fyrir sama tímabil árið 2014.Börnum sem fóru í greiningar- og meðferðarviðtöl fjölgaði úr 83 börnum í 99 börn, en þau voru 95 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. 

Vistanir á neyðarvistun Stuðla voru 164 á fyrstu níu mánuðum ársins 2016, 128 á sama tímabili árið á undan og141 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Vistunardögum fjölgaði úr 871 degi í 954 daga milli áranna 2015 og 2016 en þeir voru 886 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Fjölda einstaklinga hefur fjölgað voru 80 börn á fyrstu níu mánuðum ársins 2016, 69 börn fyrir sama tímabil árið á eftir og 71 barn á fyrstu níu mánuðum ársins 2016. 

Umsóknum um leyfi til að gerast fósturforeldrar fjölgaði, voru 52 á fyrstu níu mánuðum ársins 2016, en 40 fyrir sama tímabil árið á undan. Umsóknir voru 50 á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Flestar umsóknir voru frá Reykjavík og nágrenni. 


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica