• Kona á skrifstofu

Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndar á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022.

20 feb. 2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa tók við. Mánaðarlega skiluðu barnaverndarnefndir tölulegum upplýsingar varðandi tilkynningar, til Barnaverndarstofu og er nú sömu upplýsingum skilað til Barna- og fjölskyldustofu. Í þessari samantekt er að finna samanburð á fjölda tilkynninga til barnaverndarnefnda skv. sískráningu nefndanna á fyrstu sex mánuðum áranna 2020, 2021 og 2022. 

Tilkynningar til barnaverndarnefnda færri en árið áður

Tilkynningar til barnaverndarnefnda voru 3,7% færri á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 miðað við sama tímabil ársins á undan en þó fleiri ef miðað er við sama tímabil árið 2020. Fjöldi tilkynninga á tímabilinu janúar til og með júní 2022 voru 6.578.

Líkt og fyrri ár voru flestar tilkynningar á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 vegna vanrækslu eða 42,9% allra tilkynninga. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 var 28,9% og er það nokkuð hærra en á sama tímabili árið áður. Hlutfall tilkynninga vegna áhættuhegðunar barna var 27,8% á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 og er það mitt á milli þess sem mátti sjá á sama tímabili 2021 og 2020.

Fjöldi tilkynninga þar sem heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu voru óvenju fáar á fyrstu mánuðum ársins 2022 eða 25 samanborið við 55 og 73 árið á undan. Almennt eru tilkynningar vegna ófæddra barna í kringum 1% allra tilkynninga en var 0,4% á fyrstu sex mánuðum 2022.

Tilkynningum vegna vanrækslu varðandi nám hefur farið örlítið fjölgandi en þess fyrir utan voru tilkynningar vegna vanrækslu heldur færri í öllum flokkum, miðað við árið á undan. Fjöldi tilkynninga á fyrsta hálfa árinu 2022 vegna ofbeldis er í takt við það sem sást á sama tímabili árið áður: fjöldi tilkynninga vegna ofbeldis voru 1.903 á tímabilinu árið 2022 en 1.907 árið 2021. En tilkynningum vegna líkamlegs ofbeldis heldur áfram að fjölga, eða um 12,5% ef miðað er við fyrsta hálfa ár 2021.

Þrjár af hverjum tíu tilkynningum vegna líkamlegs og kynferðisofbeldis af hendi náins aðila

Frá áramótum hefur sískráning barnaverndarnefnda verið unnin samkvæmt uppfærðu Skilgreiningar- og flokkunarkerfi í Barnavernd. Helsta breytingin er sú að nú er skráð ef tilkynning berst vegna ofbeldis af hendi náins aðila. Í eldri skýrslum var vísað til heimilisofbeldis þegar börn urðu vitni af ofbeldi af hálfu náins aðila. Hér hefur verið vikið frá þeirri orðanotkun og vísað til tilfinningalegs ofbeldis af hálfu náins aðila. Nú er einnig sérstaklega skráð ef tilkynning sem berst vegna líkamlegs eða kynferðisofbeldis sé af hendi náins aðila. Þá hefur verið hafið að skrá tilkynningar vegna stafræns kynferðisofbeldis.

Þessi nýja skráning gefur betri mynd af eðli tilkynninga sem berast barnaverndarnefndum. Til dæmis má sjá á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 að 46,1% tilkynninga vegna tilfinningalegs ofbeldis vörðuðu ofbeldi af hálfu náins aðila. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 má sjá að 28,5% tilkynninga sem bárust nefndum vegna líkamlegs ofbeldis voru af hendi náins aðila. Þá voru um 28,7% allra tilkynninga um kynferðisofbeldi af hendi náins aðila og 12,5% tilkynninga um kynferðisofbeldi voru vegna stafræns kynferðisofbeldis.

Þá má sjá að stór hluti tilkynninga er að berast úr nánasta umhverfi barns. Samanlagður fjöldi tilkynninga frá barninu sjálfu, ættingjum barns, nágrönnum og öðru nærumhverfi eru 1.004 eða 15,3% allra tilkynninga.

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 var 5.206 börn. Þess ber að geta að tölur um fjölda barna sem tilkynnt var um eru fengnar þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki alltaf um að ræða fjölda einstaklinga yfir ákveðið tímabil heldur samanlagðan heildarfjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.

Hér má nálgast skýrsluna


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica