Samantekt á tilkynningum fyrir árið 2022

Tilkynningum vegna áhættuhegðunar fjölgar

29 mar. 2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Mánaðarlega skiluðu barnaverndarþjónustur sískráningu tilkynninga, þ.e. tölulegum upplýsingum varðandi tilkynningar, til Barnaverndarstofu og er nú sömu upplýsingum skilað til Barna- og fjölskyldustofu. Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman tilkynningar til barnaverndarþjónusta fyrir árið 2022 en endanlegar upplýsingar koma fram í samtölublöðum barnaverndarþjónusta sem birtast árlega á vefsíðu Barna- og fjölskyldustofu.

Tilkynningum til barnaverndarþjónusta fjölgaði um 3.2% á árinu 2022 miðað við árið á undan. Fjöldi tilkynninga á árinu 2022 voru 13.694. Fjöldi tilkynninga í Reykjavík og höfuðborgarsvæði var nánast sá sami árið 2022 og hann var árið 2021 en tilkynningum hefur fjölgað jafnt og þétt síðastliðin 2 ár á landsbyggð.

Flestar tilkynningar á árinu 2022 voru vegna vanrækslu á börnum líkt og fyrri ár. Fyrir COVID-19 voru næstflestar tilkynningar almennt vegna áhættuhegðunar barna og unglinga, en breyttist við faraldurinn þegar fleiri tilkynningar vegna ofbeldis fóru að berast. Nú hefur sú þróun snúist við aftur og áhættuhegðun aftur orðið næststærsti flokkur tilkynninga. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,6% sem er talsvert lægra hlutfall en fyrri ár.

Um 30% tilkynninga vegna ofbeldis af hálfu náins aðila

Tilkynningum vegna vanrækslu á börnum á árinu 2022 fjölgaði um 5,5% frá árinu áður. Helst fjölgaði tilkynningum vegna vanrækslu varðandi umsjón og eftirlit (5%) en að öðru leyti var fjöldi tilkynninga í öllum undirflokkum svipaður og árin 2021 og 2020.

Tilkynningum vegna ofbeldis gegn börnum á árinu 2022 fækkaði um 2,4% miðað við árið á undan en var svipaður og árið 2020. Tilkynningum vegna tilfinningalegs ofbeldis fækkaði árið 2022 en aftur á móti fjölgaði tilkynningum vegna líkamlegs ofbeldis. Árið 2022 bárust 1.083 tilkynningar vegna líkamlegs ofbeldis en eru það 12% fleiri tilkynningar en bárust árið 2021 og 19,5% fleiri en bárust árið 2020.

Frá áramótum hefur sískráning barnaverndarþjónusta verið unnin samkvæmt uppfærðu Skilgreiningar- og flokkunarkerfi í Barnavernd en nú er skráð sérstaklega ef tilkynning er vegna líkamlegs ofbeldis af hendi náins aðila. Árið 2022 voru 31% tilkynninga sem bárust vegna líkamlegs ofbeldis af hendi náins aðila. Þar sem um nýja skráningu er að ræða eru sambærilegar tölur ekki til fyrir fyrri ár. Slíkt hið sama á við um tilkynningar vegna kynferðisofbeldis en 28,4% voru vegna ofbeldis af hálfu náins aðila. Alls bárust 62 tilkynningar árið 2022 vegna stafræns kynferðisofbeldis.

Tilkynningum vegna áhættuhegðunar fjölgaði um 6% árið 2022 miðað við árið á undan. Tilkynningum vegna neyslu á fíkniefnum fjölgaði um 9,4% árið 2022 miðað við árið 2021 sem og árið 2020. Árið 2022 bárust rúmlega 33% fleiri tilkynningar vegna erfiðleika barns í skóla eða þar sem skólasókn var áfátt miðað við árið á undan. Þá bárust 952 tilkynningar vegna barns sem beitir ofbeldi árið 2022. Eru það 8,3% fleiri tilkynningar en árið á undan en 28.3% fleiri tilkynningar en bárust árið 2020.

Tilkynningum frá skólum og heilbrigðiskerfi fjölgar

Flestar tilkynningar bárust frá lögreglu, eða 36,7% tilkynninga á árinu 2022. Er það lægra hlutfall samanborið við fyrri ár. Tilkynningum frá skólum og heilbrigðiskerfinu hefur farið fjölgandi, eða um 10,6% frá því sem var árið 2021. Töldu tilkynningar frá þessum tveimur stofnunum alls 26,6% allra tilkynninga. Samanlagður fjöldi tilkynninga frá næsta umhverfi barns, barninu sjálfu, ættingjum, nágrönnum og öðru nærumhverfi, voru alls 2.133 og voru 15,6% allra tilkynninga.

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á árinu 2022 var 10.781 barn, en árið á undan voru þau 10.715 og 10.400 börn árið 2020. Þess ber að geta að tölur um fjölda barna sem tilkynnt var um eru fengnar þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki alltaf um að ræða fjölda einstaklinga yfir ákveðið tímabil heldur samanlagðan heildarfjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.

 

Hér má finna samanburðarskýrsluna fyrir 2020-2022


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica