Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna nýs meðferðarheimilis Barnaverndarstofu sem staðsett verður í Garðabæ
Stefnt er að því að framkvæmdir við nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga hefjist á næsta ári í Garðabæ. Viljayfirlýsing velferðarráðuneytis, Barnaverndarstofu og Garðabæjar um lóð fyrir heimilið verður undirrituð í dag. Um er að ræða tíu þúsund fermetra lóð á Vífilsstaðahálsi, gegnt Kjóavöllum, þar sem reisa á þúsund fermetra húsnæði.
Meðferðarheimilið verður ætlað unglingum á aldrinum 15-17 ára sem glíma við alvarlegan hegðunar- og vímuefnavanda. Vistunartími verður að jafnaði 6-9 mánuðir og eftir að vistun lýkur er umfangsmikil eftirmeðferð í 6 mánuði. Pláss verður fyrir 8 unglinga í vistun og til viðbótar fá um 8-10 unglingar eftirmeðferð á hverjum tíma. Stærstur hluti skjólstæðinga mun þegar jafnvægi er náð stunda vinnu og skóla utan veggja heimilisins og vera í miklum tengslum við nærumhverfi og heimili fjölskyldunnar. Aðrir munu á tímabilum þurfa meiri gæslu og hægari aðlögun að nærumhverfi. Í aðskildum hluta heimilisins er gert ráð fyrir öryggisvistun og vistun unglinga sem sæta gæsluvarðhaldi. Gert er ráð fyrir að um 25-30 manns sinni sérfræðistörfum og vaktavinnu við heimilið.