Starf sérfræðings á meðferðar- og fóstursviði Barnaverndarstofu
Barnaverndarstofa auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á meðferðar- og fóstursviði stofunnar. Um er að ræða fullt starf sem felur meðal annars í sér:
Samskipti og ráðgjöf við barnaverndarnefndir, fósturforeldra, meðferðaraðila á vegum Barnaverndarstofu og aðra fagaðila vegna skipulags og framkvæmdar þjónustu við börn í tilteknum úrræðum.
-
Umfjöllun og afgreiðslu umsókna sem felur meðal annars í sér mat á upplýsingum barnaverndarnefnda og annarra fagaðila um umönnunar-/meðferðarþörf barna og viðeigandi þjónustu.
-
Leiðbeiningar og gæðaeftirlit við gerð og framkvæmd meðferðarmarkmiða og -áætlana vegna barna á fóstur- eða meðferðarheimilum, m.a. börn sem glíma við alvarlega hegðunar- og/eða tilfinningaerfiðleika.
Menntun og reynsla:
- Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis- eða félagssviði.
- Krafa um þekkingu á sviði frávika í hegðun og þroska barna og unglinga, matsaðferðum, greiningarhugtökum og -tækjum og fjölbreyttum aðferðum í meðferðarvinnu með börnum og foreldrum.
- Þekking og reynsla af barnaverndarstarfi, sem og af gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur er æskileg.
Persónulegir eiginleikar:
- Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnarmiðað.
- Lögð er áhersla á góða samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
- Krafa um góða íslenskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
- Krafa um góða enskukunnáttu og æskileg kunnátta í einu Norðurlandamáli.Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna. Umsóknarfrestur er til og með 15. október n.k. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Barnaverndarstofu í síma 530 2600 (www.bvs.is). Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.