• Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

26 mar. 2024

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

 

Tilkynningum fjölgar á milli ára en hlutfallslega mest í flokki áhættuhegðunar

Líkt og fyrri ár voru flestar tilkynningar vegna vanrækslu á börnum eða 41,4% allra tilkynninga. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis gegn börnum á árinu 2023 var 25,6% og hlutfall tilkynninga vegna áhættuhegðunar barna var 32,4%. Fyrir COVID-19 voru næstflestar tilkynningar almennt vegna áhættuhegðunar barna og unglinga, en breyttist við faraldurinn þegar fleiri tilkynningar vegna ofbeldis fóru að berast. Árið 2022 snerist sú þróun við og áhættuhegðun varð aftur næststærsti flokkur tilkynninga. Á það einnig við árið 2023. Hlutfall tilkynninga þar sem að heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,7% sem er svipað og fyrri ár.

Tilkynningum vegna vanrækslu á börnum á árinu 2023 fjölgaði um 6,4% frá árinu áður. Tilkynningum vegna vanrækslu varðandi umsjón og eftirlit fjölgaði um 8%. Slíkar tilkynningar eru sérstaklega merktar ef þær berast vegna þess að foreldrar eru í áfengis- og/eða fíkniefnaneyslu og fjölgaði slíkum tilkynningum um 10,6% miðað við árið 2022.

Tilkynningum vegna ofbeldis gegn börnum á árinu 2023 fjölgaði um 4,3% miðað við árið á undan. Tilkynningum fjölgaði í öllum flokkum nema vegna kynferðisofbeldis þar sem tilkynningum fækkaði um 9,8% á milli ára. Mest fjölgaði um tilkynningar vegna líkamlegs ofbeldis en slíkar tilkynningar voru 12,1% fleiri árið 2023 en árið 2022. Í 30,4% tilvika voru slíkar tilkynningar vegna ofbeldis af hendi náins aðila.

Tilkynningum vegna áhættuhegðunar fjölgaði um 25,1% árið 2023 samanborið við 2022. Þá munaði helst um tilkynningar vegna þess að barn stefnir eigin heilsu í hættu og afbrota barnsen slíkum tilkynningum fjölgaði um 45,4% á milli ára. Tilkynningum vegna afbrota barns fjölgaði einnig töluvert á milli ára, eða um 26,4%. Tilkynningum vegna þess að barn beitir ofbeldi fjölgaði um 12,6% árið 2023 frá því sem barst árið 2022.

Fimmtungur tilkynninga berst frá nánasta umhverfi barnsins

Líkt og fyrri ár bárust flestar tilkynningar frá lögreglu, eða 37,8% allra tilkynninga á árinu 2023, sambærilegt hlutfall og fyrri ár. Tilkynningum frá skólum og heilbrigðiskerfinu heldur áfram að fjölga. Tilkynningum frá skólum fjölgaði um 14,2% á milli ára en um 17,7% frá heilbrigðiskerfinu. Þá má draga athygli að flokki tilkynnenda sem bætt var við í ársbyrjun 2022, annað nærumhverfi barns. Slíkar tilkynningar voru áður flokkar sem annað en árið 2023 voru tilkynningar frá nærumhverfi barns alls 1.000 talsins. Í heildina eru um 20,1% tilkynninga að berast frá nánasta umhverfi barnsins, þ.e. frá barninu sjálfu, foreldrum, ættingjum, nágrönnum eða öðru nánasta umhverfi barnsins.

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á árinu 2023 var 11.754 börn, en árið á undan voru þau 10.781 og 10.715 árið 2021. Þess ber að geta að tölur um fjölda barna sem tilkynnt var um eru fengnar þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki alltaf um að ræða fjölda einstaklinga yfir ákveðið tímabil heldur samanlagðan heildarfjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.

Skýrslan í heild: Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta allt árið árin 2021, 2022 og 2023 


Nýjustu fréttir

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica