10 ára afmælisráðstefna MST - Fjölkerfameðferðar

Barnaverndarstofa býður til afmælisráðstefnu í tilefni þess að nú eru tíu ár liðin frá því að fyrsta MST teymið tók til starfa hér landi.

21 nóv. 2018

Á ráðstefnunni verður farið yfir áhrif og árangur MST í meðferð á hegðunar- og vímuefnavanda. Einnig munum við fræðast um MST-CAN (Child Abuse and Neglect) og innleiðingu þess í Noregi sem hefur reynst vel í flóknum barnaverndarmálum.

10 ára afmælisráðstefna MST (fjölkerfameðferðar)
27. nóvember 2018 Grand Hótel Reykjavík (Háteigur)

Ykkur er boðið á afmælisráðstefnu í tilefni þess að nú um miðjan nóvember eru 10 ár liðin frá því að fyrsta MST teymið tók til starfa hér landi.  Við munum skoða áhrif og árangur MST í meðferð hegðunar- og vímuefnavanda í nærumhverfi.
Einnig munum við fræðast um MST-CAN (Child Abuse and Neglect) og innleiðingu í Noregi sem hefur reynst vel í flóknum barnaverndarmálum. MST-CAN var þróað til að meðhöndla fjölskyldur þar sem eitt eða fleiri börn á heimilinu, á aldrinum 6-17 ára, búa við ofbeldi eða vanrækslu. Meðferðin tekur 6-9 mánuði og miðar að því að tryggja öryggi barns á heimilinu, efla foreldrafærni og meðhöndla vanda foreldra og barns sem getur meðal annars tengst afleiðingum áfalla eða vímuefnaneyslu.
Allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.

Vinsamlega sendið skráningu (nafn og netfang) á bvs@bvs.is fyrir 23. nóvember

Dagskrá

9:30 – 9:40  Setning: Heiða Björg Pálmadóttir forstjóri Barnaverndarstofu
9:40 –10:20  Heildstæð meðferð og stigskipt þjónusta. Árangur og áskoranir MST hér á landi:
Halldór Hauksson, Ingibjörg Markúsdóttir, Marta María Ástbjörnsdóttir
10:20-10:40  Áhrif MST á barnaverndarstarf
Þórdís Gísladóttir og Ottó Karl Tulinius starfsmenn barnaverndarnefndar Eyjafjarðar
10:40-10:55  Kaffihlé
10:55-11:55  Nokkur dæmi úr MST meðferð: Vímuefnameðferð, vinna með skólum, kerfavinna:
Guðrún Inga Guðmundsdóttir og Stella Viktorsdóttir
Helga Rúna Pétur, Arndís Anna Hilmarsdóttir og Snjólaug Birgisdóttir
Unnur Helga Ólafsdóttir og Guðbjörg Gréta Steinsdóttir, MST þerapistar
Sigrún Bjarnadóttir skólastjóri Álfhólsskóla
11:55-12:10  Vanræksla og ofbeldi. Þörf fyrir meðferðarúrræði:
 Hákon Sigursteinsson framkvæmdstjóri Barnaverndar Reykjavíkur og
Heiða Björg Pálmadóttir forstjóri Barnaverndarstofu
12:10-13:00  Hádegisverður í boði Barnaverndarstofu
13.00-14.00  MST-CAN. How we've been able to help the previously “unhelpable” families in Norway: Bernadette Christensen og Audun Formo Hay frá NUBU í Noregi (Nasjonalt utviklingssenter for barn og unge)
14:00-14:20  Kaffihlé
14:20-15:10  MST-CAN (framhald Bernadette og Audun)
15.10-15.30  Umræður og ráðstefnulok


Nýjustu fréttir

Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

26. mar. 2024 : Samanburður á fjölda tilkynninga til barnaverndarþjónusta á árunum 2021 - 2023

Barna- og fjölskyldustofa hefur tekið saman fjölda tilkynninga sem bárust barnaverndarþjónustum árið 2023. Tilkynningum fjölgaði um 11,3% á árinu miðað við 2022 en fjöldi tilkynninga á árinu 2023 voru 15.240.

Lesa meira

21. feb. 2024 : Sexan stuttmyndasamkeppni

Sexan stuttmyndasamkeppni er nýtt fræðsluverkefni Neyðarlínunnar um stafrænt ofbeldi fyrir nemendur í 7.bekkjum grunnskóla landsins og dómnefnd hefur valið sigurvegara ársins 2024. 

Lesa meira
Utlit-a-namskeid-_agust.001-16

16. feb. 2024 : Samantekt um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu 2020-2023

Við lok árs 2021 var Barnaverndarstofa lögð niður og ný stofnun, Barna- og fjölskyldustofa, tók við. Í þessari samantekt er að finna upplýsingar um úrræði og fjölda umsókna um þjónustu til Barnaverndarstofu á árunum 2020-2021 og árið 2022-2023, til Barna- og fjölskyldustofu. Þá má finna tölulegar upplýsingar úr Barnahúsi frá sama tímabili, fyrir allt árið 2020-2023.

Lesa meira

02. feb. 2024 : Framhaldsnámskeið ætlað tengiliðum farsældar

Nú hefur verið opnað fyrir framhaldsnámskeið sem ætlað er tengiliðum farsældar.

Lesa meira

Þetta vefsvæði byggir á Eplica